Náttúrufræðingurinn - 1952, Síða 18
64
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
1. mynd. Þorskveiði íslendinga og heiltlarþorskveiði við ísland á árunum 1906—1950. —
Icelandic catch of cod and total catch of cod on Icelandic Grounds in the years 1906—
1950.
Hundraðshluti liinna einstöku þjóða í heildarþorskveiðinni við
ísland árin 1906—39 er sem hér segir: ísland 47.6%, England 25.7%,
Pýzkaland 9.9%, Færeyjar 9.7%, Skotland 3.6%, Frakkland 1.8%,
Noregur 1.2%, Holland 0.3% og Belgía 0.2%. íslendingar hafa
þannig veitt tæplega helming af öllum þeim þorski, sem fengizt hef-
ur úr sjó á íslandsmiðum.
Á 1. rnynd eru tvö greinileg hámörk: 1930—33 og 1944, og lág-
mark 1936—38, auk þess eru ýmsar smærri sveiflur, sem orsakast af
slæmum gæftum á vertíðinni, verkföllum, markaðsvandræðum o. fl.
Stóru hámörkin aftur á móti orsakast af verulegri aukningu í styrk-
leika stofnsins.
Þessar sveiflur í aflamagninu eru alkunnugt fyrirbrigði í öllum