Náttúrufræðingurinn - 1952, Síða 22
68
NÁTTÚRU FRÆÐIN GURINN
)
veiðina 6—8 ára gamlir, ná hamarki um 10 ára garnlir og eru að
mestu horfnir úr veiðinni 14—16 ára. Aldursrannsóknirnar ná nú
yfir 25 ára tímabil og hafa gefið okkur ómetanlegar upplýsingar um
stofninn. Við höfum getað fylgt hinum einstöku árgöngum „frá
vöggu til grafar“ og athugað framlag hvers eins til veiðanna hverju
sinni. Ég nefni hér aðeins eitt atriði, vegna þess að það hefur þýð-
ingu fyrir það, sem á eftir kemur. Það hefur kornið í ljós, að einstakl- J
ingar sama árgangs eru mjög mis-þroska. Hinir bráðgerustu verða
kynþroska 4—5 ára gamlir, en þeir síðustu ekki fyrr en 14—15 ára.
Þessar upplýsingar um kynþroska fisksins höfum við aðallega fengið
við athuganir á kvörnunum, því að eins og við af þeirn getum lesið
aldur fisksins, getum við séð, á hvaða ári hann verður kynþroska.
Myndast við hrygninguna sérstakir baugar í kvörninni, svo kallaðir
gotbaugar, og gefur fjöldi þeirra til kynna, hve oft fiskurinn hefur
hrygnt. Jafngamlir fiskar tilheyra sama árgangi, en fiskar sem verða
kynþroska á sama ári eru sagðir tilheyra sama gotflokki. Mjög ná-
kvæmar og yfirgripsmiklar rannsóknir á gotbaugunum í kvörnunum
hafa nú sýnt, að mest er af fiski í 1. gotflokki, nýliðum, þ. e. fiski,
sem er að hrygna í fyrsta skipti. í 2. gotflokki er um helmingur af
fjöldanum í fyrsta gotflokki og í 3. gotflokki aftur um helmingur af
öðrum gotflokki o. s. frv. Fjöldinn minnkar um helming í hverjum
flokki. Af þessu drögum við þá afar mikilsverðu ályktun að dánar-
tala hins kynþroska hluta stofnsins sé um 50%.
Við erum nú komnir það langt, að við vitum, hvað mikið verður
eftir af hverjum árgangi næsta ár. En hvað um þann hluta árgangs-
ins, sem enn er eftir að koma í gagnið, og yngri árganga, sem koma
til hrygningar í fyrsta skipti?
Hér koma gotbaugarnir okkur að góðu haldi, því að út frá þeim
getum við reiknað hlutfallið milli þess hluta árgangsins, sem verður
kynþroska á aldrinum a-j-1 og a. Þetta hlutfall köllum við kyn-
þroskastuðul, og fer hann minnkandi með auknum aldri.
Kynþroskastuðlarnir og dánartalan gera okkur fært að segja fyrir
um afdrif hvers árgangs og þar af leiðandi aldursdreifingu alls
stofnsins frá einu ári til annars.
Þetta verður bezt skýrt með 5. mynd, er sýnir aldursdreifingu
línufisks á vetrarvertíðinni 1951. Aldur fisksins er frá 3—22 ár, aldur
við fyrstu hrygningu 4—14 ár, og fjöldi gotflokka er 13. Til nánari
skýringar skulum við athuga 9 ára fiskinn (árg. 1942). 1101 eru tald-
ir nýliðar og settir í reitinn 9—9. 846 eru að hrygna í annað sinn og