Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1952, Side 41

Náttúrufræðingurinn - 1952, Side 41
MEIRA UM RAUBHÓL 85 S N 3. mynd. Jarðlagaskipun í Rauðhól, líkingarmynd. I. Berggrunnurinn, úr grágrýd. II. Grettistök, ofan við efstu sjávarmörk. III. Sjávarmöl og lábarðir linullungar; k. hnull- ungakambur við efstu sjávarmörk. IV. Set, myndað á landi og í ósöltu vatni, mest barnamold. V. Sjávarsandur með skeljum. VI. Storkunagli í eldrásinni (sprungu?). VII. Gosmöl, aðallega rautt gjall. VIII. Jarðvegslag. IX. Hvaleyrarhraun. — Fig. 3. Schematic section of RauÖhóll. I. Basalt rock with striated, moutonnée surface. II. Subangular erratic blocks. III. Thoroughly rounded boulders and pebbles. A wall of these malerials marks the liighest shore-line, k, 32 metres a. s. I. IV. land and fresh-water deposits, mostly diatomaceous earth. V. Marine sand with shells. VI. Volcanic neck. VII. Pyro- clastic material, mostly scoria. VIII. Soil, covered by a thin layer of volcanic ash. IX. Lava. eitthvað um þessar mundir, og olli það nokkru um mishæðirnar, en brotabrúnirnar hafa máðst og jafnazt af jöklinum. 3. í ísaldarlokin, sennilega fyrir fullum tíu þúsundum ára, bráðn- aði jökullinn. En grágrýtisklappirnar bera hans minjar æ síðan. Þær eru allar rispaðar í stefnu til norðvesturs, út á Faxaflóa, og víða þaktar jökulruðningi, þ. e. leir og grjóti, sem jökullinn ýtti eða bar fram í botnlagi sínu. Um Jressar mundir leysti ísaldarjökla víða um heim og við það hækkaði í sjónum. Skömmu eftir að Hvaleyrarholt varð örísa, náði sjávarborð mestri hæð og lá þar um skeið, 32 m yfir núv. sjávarmáli. Neðan þeirra takmarka þógu öldur og straumar jökulleirinn af grá- grýtisklöppinni, en steinar, einkum stórgrýti, úr jökulruðningnum lágu eftir. Nú er það allt brimbarðir hnullungar, mjög rækilega ávalaðir. Sums staðar liafa þeir kastazt upp í kamba, og er hinn efsti, 32 m y. s., langgleggstur (III. k.). Þar fyrir ofan er jökulruðningur- inn lítt hreyfður og mikill munur á, hve steinarnir í honum eru hvassbrýndari (II. g.). 4. Sjávarborð lækkar a. m. k. niður fyrir núv. 10 m hæðarlínu, ef

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.