Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1952, Page 52

Náttúrufræðingurinn - 1952, Page 52
96 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN þaðan er henni ekki undankomu auðið vegna andspyrnu kok- og kjafttanna. Þetta er áreiðanlega einhver útsmognasta uppfinning náttúrunnar á sviði veiðitækninnar, og hafa slík tæki ekki þróazt með neinum öðrum l’lokki dýra. Ég vona að þessi dæmi sýni, hve fiskaheimur sædjúpanna er heill- andi rannsóknarefni. Dr. Bertelsen hefur gefið oss miklu dýpri skiln- ing á sambandi fiskanna við umhverfi sitt og ritað vandvirknislegt vísindarit, sem er mjög læsilegt. Dr. Bertelsen á hér á landi marga kunningja og vini, því að oft hefur hann gist ísland í rannsóknarskyni. Vil ég óska honum til hamingju með ritið og óska þess, að honum gefist tækifæri til að kynnast einkalífi og fiskaskipulagi sædjöflanna enn betur. Tómas Tryggvason: Steinrunninn hvarfleir Sumarið 1950 gáfu Kvískerjabræður mér einkennilegan steinmola, sem þeir höfðu fundið á Kvíáraurum. Steinninn er dökkgrár með ljósum röndum. Hvörfin eru 6 eða 7. Dökku hvörfin eru 7—8 mm breið, en þau ljósu því sem næst 2 mm. Auk þess eru bæði dökku og ljósu hvörfin smáröndótt. Dökku hvörfin eru hörð sem glerhallur, en ljósu hvörfin má rispa með hnífsoddi. Við smásjárrannsókn kom í ljós, að steinninn er fínkomótt set, límt saman í jaspískenndum grunnmassa. Setkornin í dökku hvörf- unum eru að jafnaði um það bil 2p í þvermál, en miklum mun smærri í ljósu hvörfunum. Setkornin eru því of smá fyrir flestar optiskar rannsóknir; þó sést, að ljósbrot þeirra er allmiklu hærra en ljósbrot grunnmassans, sem er því sem næst 1,54. Er því ekki óhugs- anlegt, að þau geti verið basaltiskt feldspat. í dökku röndunum gætir nokkuð málmkorna, og eru þau oft stærri en setkornin. Málmkornin nægja samt ekki til þess að gefa röndunum dökkan blæ, og stafar liann frá svo fíngerðu dufti, að

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.