Náttúrufræðingurinn - 1956, Blaðsíða 16
78
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Upptök nokkurra jarðskjálfta á árunum 1954 og 1955.
Determined epicenters uf the years 1954 nnd 1955.
inu 21 dag ársins 1954, þar af 3 daga á Norðurlandi, en 18 daga á
Suðvesturlandi. Suma dagana fundust margir kippir, t. d. um 60
í Hveradölum á Hellisheiði 29. október.
Árið 1955 fundust jarðskjálftar óvenju mikið á landinu, enda
þótt enginn einn jarðskjálfti væri mjög mikill. Mesti jarðskjálfti
ársins kom 1. apríl og voru upptök lians nálægt Hveragerði í Ölfusi,
en þar olli hann nokkru tjóni. Talsvert miklir jarðskjálftar komu
einnig 15. janúar milli Grindavíkur og Krísuvíkur, aðfaranótt
18. janúar í Holtum í Rangárvallasýslu, 27. febrúar og næstu daga
þar á eftir í Axarfirði, aðfaranótt 13. marz í Laugardal, 14. marz
skammt suðaustur frá Reykjavík og 19. maí á hafsbotni skammt
austur af Grímsey. Tjón hlauzt ekki af jarðskjálftum þessum, nema
lítils háttar í Axarfirði 27. febrúar.
Alls er vitað um, að jarðskjálftar hafi f'undizt 37 daga ársins 1955,
24 daga á Norðurlandi og 15 daga á Suðvesturlandi.
Hér skulu taldir jarðskjálftar þeir, sem vitað er að fundizt hafi
á íslandi á árunum 1954 og 1955: