Náttúrufræðingurinn - 1956, Blaðsíða 17
JARÐSKJÁLFTAR ÁRIN 1954 OG 1955
79
1954.
4. janúar kl. 01 13 fannst talsverður jarðskjálftakippur á Húsavík.
27. maí kl. 07 37. Vægur jarðskjálfti í Grindavík. í Reykjavík mældust um
20 hræringar þennan dag, og voru upptök þeirra f 37—40 knt fjarlægð f
suðvestri.
4. júní kl. 10 44 fannst vægur jarðskjálfti í Grindavik. Var þetta svonefndur
„hverakippur", styrkleiki IV stig.
6. júni kl. 10 til 11 fundust jarðskjálftakippir í Norðurárdal í Borgar-
fjarðarsýslu.
5. ágúst kl. 00 36 fannst greinilegur jarðskjálfti í Flóa í Árnessýslu. Upptök
hans mældust í 37 km fjarlægð frá Reykjavfk.
22. ágúst. Tveir vægir jarðskjálftakippir á Húsavík, kl. 21 05 og 21 30. Styrk-
leiki þess fyrra III—IV stig, en þess síðara III stig.
1. september fundust tveir jarðskjálftakippir á Siglufirði, sá fyrri III—IV
stig kl. 02 45, en sá síðari IV stig kl. 04 49.
14. og 15. september fundust um 10 jarðskjálftakippir í Grindavík og var
styrkleiki rnestu kippanna IV stig. Á Keflavíkurflugvelli fannst einn mjög
vægur kippur. í Reykjavík mældust um 70 hræringar þessa daga og var fjar-
lægðin til upptaka þeirra 40—45 km.
29. olttóber hófust talsverðir jarðskjálftar á Suðurlandi og voru þeir snarp-
astir í Hveradölum á Hellisheiði, en litlu vægari í Hveragerði. í Hveradölum
fundust um 60 kippir þennan dag og voru þeir snörpustu V stig, en 10 kippir
fundust f Hveragerði, þeir snörupstu IV—V sdg. Mestu kippirnir, sem komu
kl. 19 11, 20 25 og 20 27 fundust um mikinn hluta Suðurlandsundirlendisins
og við sunnanverðan Faxaflóa, alls á um 7000 km2 svæði.
30. október fundust enn jarðskjálftar f Hveragerði og Hveradölum, og kl.
14 47 kom kippur, sem var svipaður þeirn mestu daginn áður og fannst á sama
svæði. Um kvöldið voru tveir menn staddir í Innstadal í Hengli. Fundu þeir
snarpan jarðskjálftakipp (V stig) kl. 22 32. Sá kippur fannst einnig í Hvera-
gerði, en þar var styrkleikinn aðeins III stig. Af þessu, og því hvernig kippur
þessi mældist í Reykjavík, má draga þá ályktun, að upptök jarðskjálftans hafi
verið í eða mjög nálægt Innstadal og vart á meira en 5 km dýpi.
31. október fundust tvær vægar jarðhræringar 1 Hveragerði.
2. nóvember kl. 18 47 fannst lítils liáttar jarðhræring í Hveragerði.
6. og 7. nóvember fundust margar smáhræringar í Hveragerði. Einnig fannst
jarðskjálfti í Villingaholti í Flóa þann 7. kl. 15 45.
19. nóvember um kvöldið fundust fjórar smáhræringar í Hveragerði og ein
mjög væg í Villingaholti.
20. nóvember kl. 10 fannst vægur jarðskjálfti í Hveragerði og kl. 16 18
fannst væg hræring á Neistastöðum í Flóa.
21. nóvember um kvöldið fundust talsverðir jarðskjálftar á söntu slóðum
og 29. október. Mestu kippirnir komu kl. 21 46, 22 24 og 22 25. Fundust þeir
m. a. í Hveragerði, Alviðru í Ölfusi, Villingaholti í Flóa og Hveradölum. Voru
tveir hinir fyrri talsvert snarpir, IV stig í Hveragerði og V stig f Hveradöl-
um, en sá síðasd vægari. í Reykjavík fundust tveir síðustu kippirnir, en voru
mjög vægir (II—III stig) og í Holtum í Rangárvallasýslu fannst vægur kippur