Náttúrufræðingurinn - 1968, Qupperneq 30
24
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
í jarðlagi frá Júratímanum og gæti því verið 150—160 milljón ára
gömul. Lengd beinagrindarinnar var um 20 metrar. Staðurinn, þar
sem beinagrindin fannst, var undir austurhlíðum Klettafjalla. En
þar er víðáttumikið svæði, sem var auðugt af beinagrindum ýrnissa
skriðdýra og spendýra. Þórseðlan hefur verið gildvaxið og fremur
klunnalegt dýr með fjóra fætur og tiltölulega háfætt. Hvert fótspor
jress reyndist vera um einn metri að flatarmáli. Hálsinn var langur
og sterklegur, en höfuðið lítið, enda hefði þurft mikið vöðvaafl til
að bera stórt höfuð á svo löngum hálsi. Heilabúið hefur þvi verið
lítið. Og ef gáfurnar lara eftir stærð heilans, þá hafa þær vissulega
verið af skornum skammti hjá þórseðlunni. En til uppfyllingar var
annar heili í hryggnum aftur á lend — tvöfalt til þrefalt stærri en
heilinn í höfðinu. Áætluð þyngd dýrsins er a. m. k. 30 smálestir.
Svo að eðlan yrði ekki allt of þunglamaleg til gangsins, sá náttúran
um það að hafa holrúm í hryggjarliðunum og fleiri beinum án
þess þó að rýra styrkleika beinanna. Enda þótt menn gætu farið
nærri um það, hvernig holdið var á beinagrindinni, þá var eftir að
sjá út rétta lögun og limaburð dýrsins. Hvað fæturna snertir, höfðu
sumir dýrafræðingar fætur fílsins til fyrirmyndar og létu hinn mikla
búk livíla á fjórum, sterkum stoðum. Aðrir álíta að fæturnir hafi
verið bognir um olnbogana og hnén, og hefur þá dýrið verið dálítið
útskeift. Hér verður ekki lagður dómur á það, hvorir hafi rétt fyrir
sér. Við uppsetningu á eðlunni hefur hálsinn verið hafður S-beygð-
ur í líkingu við strútsháls.
Álitið er, að þórseðlan hafi verið hægfara dýr. Hún var jurtaæta,
það sýna tennurnar. Hún hafðist við í flóum, í fenjum eða vötnum
og nærðist á safaríkum plöntum, sem þar uxu. Svona stór skepna
hefur þurft ósköpin öll að eta. Reiknað hefur verið út, að hún
hafi varla kornizt af með minna en um 400 kg á dag. Álitið er
að eðla þessi hafi getað verið á kafi í vatni, þegar því var að skipta,
og hefur það verið henni mikil vörn gegn grimmum ráneðlum,
sem lifðu á landi. Menn halda, að þórseðlan liafi getað lifað í
200 ár. Eullkomin beinagrind af henni er til á Náttúrugripasafni
New York-borgar.
Þórseðlan telst til hinna svokölluðu trölleðla, sem á vísindamáli
kallast Dinosaurus. Deinos þýðir hræðilegur og sauros þýðir eðla.
Náskyldur þórseðlunni er Diplodocus; mætti nefna eðlu þessa þórs-
eðlubróður. Beinagrindur úr þeirri trölleðlu eru vel þekktar. Hafa