Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1971, Side 3

Náttúrufræðingurinn - 1971, Side 3
Náltúrufr. — 40. árg. — 4. hefti — 209.—272. siöa — lleykjavik, marz 1971 Guðmundur Kjartansson: Steinbogar Inngangur Þetta greinarkorn er til þess saman tekið að láta nokkurt les- mál fylg'ja ágætri litmynd af steinboganum á Nyrðri-Ófæru í Eld- gjá. Sú mynd er enn ein af þeim, sem Náttúrufræðingurinn hefur nú birt undanfarin ár fyrir hugulsemi og rausn velunnara síns, Eyþórs Erlendssonar. Aftur á móti hefur greinarhöfundur ekkert lagt sig fram um að rannsaka steinboga, og má heita, að kynni mín af þessu skemmtilega náttúrufyrirbæri séu tilviljanir einar. Orðið stembogi er hér haft í þeirri merkingu, sem ég hef sjálfur vanizt og ég ætla, að flestir leggi nú í það, en það er: sjálfgerð brú eða spöng úr hörðu bergi yfir á eða lceli. — Steinbogi var fyrrum haft í víðtækari merkingu, og eimir eftir af því enn, eins og síðar verður getið. Ef flokka skal steinboga eftir uppruna, virðist eðlilegast að fara eftir því, að hve miklu leyti hvelfingin undir þeim er til orðin úr lekaæð eða annarri veilu, sem fyrir var í berginu, og að hve rniklu leyti hún hefur sorfizt í hart berg af völdum öflugrar straum- iðu, sem þar mæddi á fastara en annars staðar. Hér á eftir verður að nokkru getið allra þeirra steinboga, sem ég hef séð hér á landi, og þeir taldir því sem næst í röð eftir mynd- unarhætti, þannig að byrjað er á einhlítum ,,veilubogum‘“ og endað á „iðubogum". Allir þessir steinbogar eru á sunnanverðu landinu, frá Skeiðaiársandi til Borgarfjarðar. í öðrum landshlutum hef ég haft mjög litlar spurnir af steinbogum og engan séð. Af þessu má þó ekki draga neina ályktun um útbreiðslu steinboga eftir landshlutum, heldur um það, hvar ég hef alið aldur minn og rnest ferðazt. Og naumast er að efa, að einnig hér syðra eru til miklu fleiri steinbogar en mér er kunnugt um og hér verða taldir. En þökk væri mér á nánari fréttum um steinboga, hvar sem er á landinu. 14

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.