Náttúrufræðingurinn - 1971, Page 4
210
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Öðulbrúará
Efstu drög Oðulbrúarár eru norðan í fjallinu Kaldbak austar-
lega á heiðunum upp af Síðu í Vestur-Skaftafellssýslu. Þar renna
lækir í giljuin til norðausturs niður að hinni eystri meginálmu
Skaftáreldahrauns, safnast í einn farveg við hraunjaðarinn og
mynda Öðulbrúará. Hún rennur síðan í meginstefnu suðaustur,
ýmist með hraunjaðrinum eða nokkurn spöl úti í hrauninu. Þegar
vöxtur er i henni, kemst hún ofanjarðar fram í Þverárvatn og úr
því um Fossála til Skaftár. En hitt mun oftar, að hún sígur öll í
jörð niður, áður en hún nái að renna saman við önnur vötn.
Hinn 4. ágúst 1956 kom ég ásamt fleira fólki gangandi innan
af Síðuafrétti, og áttum við leið yfir Öðulbrúará í Eldhrauninu
h. u. b. 3 km fyrir ofan eyðibæinn Brattland. Naumast vorum
við byrjuð að svipast um eftir vaði eða stiklum, þegar fyrir okkur
varð hinn haganlegasti steinbogi á ánni, og gengum við yfir á
honum. Þetta er flöt spöng úr helluhrauni, fáeinir rnetrar á lengd
1. mynd. Steinbogi á Öðulbrúará 4. ágúst 1956.