Náttúrufræðingurinn - 1971, Page 6
212
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
2. mynd. Steinbogi á Galtalæk 20. ágúst 1970.
Skammt fyrir neðan fossinn hverfur allur lækurinn undir hraun-
ið á stuttum kafla, á að gizka 20 m. Sú hraunspöng er kölluð stein-
boginn hjá Gerðisfossi (2. mynd). Spöngin nær raunar ekki alla
leið ylir lækjarfarveginn. Vesturhluti hennar hefur einhvern tírna
fyrir löngu fallið niður, og sér þess merki, að þar hefur lækurinn
um skeið runnið óbrúaður fram hjá á flúð úr brotum af eldra
steinboga. Sú urð hefur nokkuð stíflað upp lækinn og orðið til
þess, að hann holaði undan hrauninu í austurbakkanum og fékk
þar framrás undir núverandi steinboga. Lækurinn fyllir nú göng-
in undir steinboganum alveg upp að þaki, bæði jrar sem hann
hverfur inn í þau að ofan og kentur út úr þeim að neðan. En
þar á milli er a. m. k. sums staðar talsvert loft undir hraunspöng-
inni yfir vatnsfleti. Við vesturenda hennar má skríða og klifra
þangað niður um þröngt gat, og kemur þar niður í dimrnan helli.
Eftir hellisgólfinu beljar lækurinn á stórgrýti, sem ltrunið hefur
úr þakinu.