Náttúrufræðingurinn - 1971, Page 8
214
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
lag hins heillega hraunjaðars og út undan honum. Þetta lekavatn
hefur víkkað rás sína, unz úr henni varð svelgur, sem tók nær alla
ána, og þar nreð var hún komin undir steinboga.
Því miður er því enn við að bæta um sögu steinbogans á Tungná,
að hann er ekki lengur til. í fyrsta lagi er áin, sem undir hann
rann, nú löngum þurr; í öðru lagi rennur hún þess á milli fram
hjá honum; og í þriðja lagi er nú orðið liæpið að kalla hana
Tungná.
Þegar sumarið eftir að ég konr fyrst að steinboganunr á ánni
undir Jökulgrindum, hafði ég spurnir af því, að áin væri mjög
tekin að renna franr hjá honunr að vestan. En ég kom þarna ekki
aftur fyrr en sumarið 1959. Þá var klapparspöngin, sem fyrrum
brúaði ána, að vísu enn á sínunr stað, en mestur hluti árvatnsins
beljaði um krappan ál fast við vesturenda spangarinnar, þar sem
ekkert skarð hafði verið og ekkert vatn runnið við fyrri komu
mína. Þar að auki rann nú drjúgum nreira vatn en áður í tveim-
ur kvíslum enn vestar. Eg gizkaði á, að aðeins unr fjórðungur ár-
vatnsins færi nú unr svelginn undir hraunspöngina. Þarna gat
ekki framar talizt vera steinbogi á Tungná í þeirri merkingu orðs-
ins, sem er í það lögð í þessari grein.
Franr yfir 1960 var áin vestan undir Jökulgrindum jafnan nefnd
Tungná, eins og ég hef gert hér að framan. Og upptakasvæði
hennar, undir Kerlingum í vesturrönd Vatnajökuls, liét (og heitir
enn?) Innri-Tungnárbotnar. Samt hefur mikill meirihluti af vatni
Tungnár jafnan komið úr jöklinum í Fremri-Tungnárbotnum,
austan og sunnan við JökulgTÍndur, og þar fyrst verður hún sann-
kölluð stórá. Pétur Sumarliðason, sem mörg sunntr að undanförnu
Jiefur annazt veðuratliuganir í Jökuliieimum fyrir Veðurstofuna
og í hjáverkum vatnamælingar fyrir Orkustofnun, lítur svo á, að
sjálf Tungná komi ttpp austan Jökulgrinda, þ. e. innst í Fremri-
Tungnárbotnum. En þá upptakakvísl Tungnár, sem hér kemur
mest við sögu og rennur fram með jressum fjallgarði að vestan, hef-
ur hann nefnt Grindakvísl. Mér þykir sýnt, að sú nafngift festist
á ánni, enda liefur Pétur mikið til síns máls, einkum vegna þeirra
breytinga á landslagi, sent þarna hafa orðið síðustu 10—15 ár. Þær
breytingar eru fólgnar í hraðfara hörfun og þynningu Tungnár-
jökuls og þeirri rennslisbreytingu vatna, sem þar af leiðir.
Nú er svo komið að Grindakvísl fær ekkert aðrennsli frá Tungn-