Náttúrufræðingurinn - 1971, Síða 10
216
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
ár og enn meira torleiði að vestan. Þegar ég konr þarna fyrsta
sinni, 1956, var brúargólfið algróið mosa og nokkrn grasi, en nú
er þar troðin gata í miðju eftir fætur hugfanginna náttúruskoðara
og ekki ýkja lofthræddra.
Eldgjá er á móbergssvæði Miðsuðurlands og veggir hennar að
langmestu leyti úr móbergi. En á köflum er hraun í gjárbotnin-
um. Hefur það komið þar upp úr röðum hraungíga niðri í gjánni,
og á nokkrum stöðum hafa stór hraun flætt út úr Eldgjá um skörð
í suðausturbarm hennar. Þau hraun fylgja árfarvegum undan halla,
eins og hraunum er títt, t. d. bæði farvegi Nyrðri- og Syðri-Ófæru.
En uppi á báðum börmum Eldgjár eru einnig allmiklir hraun-
skikar og ná jrar hátt — upp í h. u. b. 150 m hæð — yfir gosstöðv-
arnar á botni hennar. Þangað gat hraun með engu móti flætt upp
úr gjánni. Þessa hraunskika telur Sigurður Þórarinsson til orðna
úr slettum frá háum eldstrókum niðri í gjánni upp og út yfir
barma hennar. Onnur skýring á tilvist þeirra kemur naumast til
greina. Sama máli gegnir um brynju af hraunkleprum, sem sums
staðar þekur móbergsveggi gjárinnar, þar sem bratti jreirra er með
minna móti. Ennfremur hefur hraunið uppi á gjárbörmunum náð
að renna talsvert undan íialla, áður en Jrað storknaði, og þá sums
staðar fossað aftur niður í gjána.
Steinboginn á Nyrðri-Ófæru virðist leifar af stalli í slíkum hraun-
fossi. Ætla má, að þar hafi hraunið storknað á lausu og leku undir-
lagi, t. d. skriðu eða vikurskafli, sem árvatnið hefur fljótlega holað
undan Jrví, svo að allt hrundi niður nema spöngin, sem nú myndar
steinbogann.
Það er sameiginlegt öllum Jreim steinbogum, sem þegar eru
taldir, að þeir eru úr hrauni, runnu eftir ísaldarlok. Aðeins undir
steinbogunum á Öðulbrúará myndar sama hraunið einnig árbotn-
inn. I öllum hinum dæmunum hefur áin holað laust jarðlag und-
an hrauninu og hraunið í fullri upphaflegri þykkt myndað spöng-
ina yfir lienni. — Aftur á móti eru þeir steinbogar, sem eftir er að
geta, allir úr miklu eldra bergi, sem er myndað fyrir síðasta jökul-
skeið og telst til sjálfs berggrunns landsins. í honum er ekki að-
Litmyndin á næstu síðu:
Steinboginn á Ófærufossum í Eldgjá. — Ljósm. Árni Iíjartansson.