Náttúrufræðingurinn - 1971, Side 16
220
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
augljóst er af staðháttum, að þar liafa slíkar myndanir aldrei verið
til á síðastliðnum árþúsundum. í átthögum mínum, Hrunamanna-
hreppi í Árnessýslu, á þetta við um tvo staði: Steinbogalæk og
Steinbogamýri milli Hruna og Sólheima og aðra Steinbogamýri
innan við Skipholtsfjall. Yfir Steinbogalæk lá fjölfarin leið, í tölu
sýsluvega, þegar ég man fyrst eftir, og sáust þar ummerki gamalla
vegabóta, m. a. brúar á læknum. Þar í sveit var haft fyrir satt, að
lækurinn drægi nafn af steinboga, sem á honum hefði verið í
fyrndinni. Að minnsta kosti mér — en ég Iield öllum — skildist,
að það liefði verið sjálfgerður steinbogi, þvert ofan í vitnisburð
staðhátta. Svo föst var þá orðin sú merking orðsins þar um slóðir.
3. En austur í Rangárvallasýslu virðist orðið steinbogi ekki enn
hafa með öllu glatað hinni fyrri merkingu sinni. Þar hef ég, bæði
á Landi og Rangárvöllum, heyrt það haft um heldur frumstæðar
göngubrýr og jafnvel stiklur á stórum lækjum, hvort tveggja manna
verk og að mestu eða eingöngu tir grjóti og torfi.
Að þessu athuguðu tel ég með öllu óvíst, að nokkurn tíma hafi
verið sjálfgerður steinbogi á gjánni ofan við fossinn í Brúará, en
á hinn bóginn hafi hún þar snemma verið brúuð með lítilli fyrir-
höfn og dragi nafn af því.
En aðeins steinsnar fyrir neðan Brúarfoss er raunar enn sjálf-
gerður steinbogi á ánni. Þar fylgir hún enn sömu þröngu berg-
skorunni, gjánni, fyllir hana upp á barma, en rúmast þó öll í
lienni. Halli farvegarins er þar minni, en þó ærið straumkast og
einkum stór boðaföll með andartakshléum á milli frá fossinum
fyrir ofan. Steinboginn er því nær undir göngubrúnni, sem nú er
á ánni, og þó ívið ofar. Hann spannar yfir gjána milli barma henn-
ar og er um 1 ýó m á lengd og 20—30 cm á breidd. Um þykktina
verður ekkert sagt, því að sá ljóður er á ráði þessa steinboga, að
hann er oftast allur undir vatnsborði, svo að naumast sér á hann
nema í öldudölunum milli þess sem ólögin skella yfir. Áin hlýtur
að hafa rúmgóða rás undir steinbogann, því að vatnsborðið er
ekki neinum mun hærra ofan hans en neðan. Efni steinbogans er
eflaust grágrýti, hið sama sem í báðum gjárbörmunum og foss-
stallinum fyrir ofan. Þetta berg er hraun að uppruna, en jökul-
rákað utan árfarvegarins og ekki yngra en frá síðasta hlýskeiði