Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1971, Side 17

Náttúrufræðingurinn - 1971, Side 17
N ÁTTÚ RUFRÆÐINGURINN 221 ísaldar, því sem lauk fyrir um 70 þúsund árum. Ætla mætti, að gjáin væri hraunsprunga, sem áin hefði víkkað; en steinboginn, sem er óbrotin bergspöng, mælir þó gegn því. Verður því fremur að ætla, að gjáin og boginn séu rofmyndun árinnar með líkum liætti og nánar greinir um steinboga, sem hér verða síðar taldir. Þessi steinbogi, sem nú er hinn eini á Brúará, er ekki til neinna samgöngubóta og hefur sennilega aldrei verið. Heyrt hef ég þó fyrir löngu, að ónafngreindur maður hafi eitt sinn sætt lagi og hlaupið yfir hann, en ekki veit ég um sönnur á því. Barnajoss i Hvítá Milli innanverðrar Hvítársíðu og Hálsasveitar í Borgarfirði rennur Hvítá vestur með suðurjaðri mikillar hraunbreiðu, sem þar heitir Gráhraun, en er raunar yzti og lægsti hluti Hallmundar- hrauns. Sunnan ár eru holt og ásar úr fornu bergi, sjálfri blágrýtis- mynduninni, sem er elzti berggrunnur íslands. En hins vegar er Hallmundarhraun mjög ungt, aðeins um 1200 ára samkvæmt C14- aldursgreiningu, sem Kristján Sæmundsson (1966) fékk gerða á gróðurleifum, sem hann fann undir því í bakka Norðlingafljóts norður frá Surtshelli. Hallmundarhraun var því á landnámsöld á svipuðum aldri og Skaftáreldahraun er nú, en þó eflaust miklu snauðara að jarðvegi og gróðri, jrví að Borgarfjarðarhérað hefur mjög farið varhluta af því, sem helzt kemur að gagni við upp- græðslu Skaftáreldahrauns, en jrað er öskufall, moldrok og flóð gruggugra vatna. Hallmundarhraun ýtti Hvítá til hliðar upp úr fyrra farvegi hennar, sem lá norðar og neðar, þangað sem hún rennur nti með hraunjaðrinum. Núverandi árfarvegur er því jafngamall hrauninu, hvort tveggja aðeins um tvítugt að aldatali. Samt er nú nýi farveg- urinn orðinn að talsverðu gili, enda er á Jrví ríflegur halli og raun- ar sýnt, að áin hefur þar enn grafið sig niðnr svo að um munar á síðustu áratugum. í jDessu gili er Barnafoss gegnt bæjunum Gils- bakka í Hvítársíðu og Hraunsási í Hálsasveit. Hann er nú fremur flúð en loss, en frægur fyrir brýr og steinboga, sem þar hafa stund- um verið á Hvítá að fornu og nýju, og ekki síður fyrir sérkenni- legt og stórfagurt umhverli. Um Jrað hefur Guðmundur Böðvars- son, skáld og bóndi á Kirkjubóli, ritað með miklum ágætum

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.