Náttúrufræðingurinn - 1971, Page 24
228
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Steinboginn er úr svipuðu móbergi og fossstallurinn. Ófært mun
með öllu niður að honum nema með því að síga í böndum.
Ghiggafoss i Merkjá
Merkjá er smáá, sem fellur ofan Fljótshlíðina í mörkurn á milli
Hlíðarendakots og Múlakots. Hún er mörgum kunn af mjög sér-
kennilegum fossi, sem blasir við af alfaraleið. Hann er nú oftast
nefndur Gluggafoss (fremur en Merkjárfoss). Raunar eru fossarnir
tveir, en skammt á milli (7. rnynd). Neðri fossinn er breiður, en
ekki margar mannhæðir, fellur franx af blágrýtislagi niðri við
hlíðarrætur. En efri fossinn er margfalt hærri, á að gizka 40—50
m, mjór og snarbrattur. Líklega á nafnið Gluggafoss við hann
einan.
í hlíðarbrúninni er blágrýtislag, sem fossinn fellur fram af. En
nær allur fossstallurinn þar fyiir neðan er úr fornlegu nxolabergi,
hörðu og þéttu, sem helzt líkist hörðnuðum jökulruðningi, en er
þó nokkuð lagskipt. í því liggja eitt eða tvö þunn blágrýtislög,
sem gætir lítið tilsýndar.
Gluggafoss hefur tekið allmiklum breytingum síðan ég sá hann
fyrst, 1929. Mitt minni hrekkur skanxmt til að greina frá þeim
breytingum, og verður hér meira stuðzt við munnlegar frásagnir
staðkunnugra Fljótshlíðinga, einkum Soffíu Túbals Irá Múlakoti,
og Ijósmyndir, gamlar og nýjar, sem hún hefur sýnt mér. Breyt-
ingarnar á fossimmx urðu mestar næstxx mánuði og misseri eftir
vikurfallið mikla í byrjun Heklugoss 29. marz 1947.
Fram til þess tíma sá lítið á efra helming Gluggafoss. Neðan frá
miðju og upp undir brún var fossinn að mestu falinn á bak við
lóðrétt bergþil, fastvaxið í gilveggina báðum megin ár. Þetta þil
var varla nema fá fet á þykkt, en á að gizka 15—20 m hátt. En göt
voru á því, ein þrjú eða ljögur hvert upp af öðru, og inn um þau
sá í hvítan fossinn í dimmri berggeil á bak við. Þetta eru glugg-
arnir, sem fossinn dregur nafn af. Út um neðsta gluggann fellur
fossinn loks óhulinn í hárri bunu niður í hyl. Eitthvað var þröngt
um ána í fossgeilinni bak við bergþilið, og virðist svo, sem hún
liafi átt það til að lxálfstíflast neðan til í geilinni, þvx að stundum
fossaði einnig út um hina efri glugga. Af þeim sökum voru ára-
skipti að xitliti fossins.