Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1971, Side 37

Náttúrufræðingurinn - 1971, Side 37
NÁTTÚRUl'RÆÐINGURINN 241 • Crassula aquatica ■ Polygonum amphibium G. mynd. Plöntur með aðalútbreiðslu á Suðvesturlandi. II. Vatna-plöntur. Fig. 6. Planls with main distribution in SW-Iceland. II: Aquatic plants. sumarhiti yíir 10 gráður. Svæðið getur ekki talizt snjóþungt, en snjór liggur þó að staðaldri yfir háveturinn á sumum hlutum þess. Til Suðvesturlandstegundanna verða hér taldar: Gullkollur (Anthyllis vulneraria), blóðkollur (Sanguisorba officinalis), mýra- ertur (Lathyrus palustris), grástör (Carex flacca), blátoppa (Ses- leria coerulea), grámygla (Gnaphalium uliginosum), lambaklukka (Cardamine hirsuta), flóajurt (Polygonum persicaria), skurfa (Sper- gula arvensis), flóðapuntur (Glyceria fluitans), vatnalaukur (Isoetes lacustris), tjarnalaukur (Littorella uniflora), vatnsnafli (Hydroco- tyle vulgaris), vatnsögn (Crassula aquatica) og tjarnablaðka (Poly- gojium amphibium). Alls 15 tegundir. Það vekur strax athygli, hve mikill hluti Suðvesturlandstegund- anna eru vatnaplöntur eða að einhverju leyti bundnar við vötn og tjarnir, og nokkrar einnig að miklu eða öllu leyti bundnar við heitt vatn (jarðhitasvæði). Eiginlegar vatnaplöntur eru: Vatnalauk- ur, tjarnalaukur, vatnsögn, tjarnal)laðka, en vatnsnafli og flóða- puntur eru einnig að mestu bundnar við rennandi vatn. Vatns- 16

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.