Náttúrufræðingurinn - 1971, Side 40
244
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
4. Plöntur með aðalútbreiðslu á Vesturlandi, Vestfjörðum, utan-
verðu Miðnorðurlandi og Austfjörðum (Vestfjarðategundir).
Hér er um að ræða stóran hóp plantna, sem hefur aðalútbreiðslu
á vesturparti landsins, einkum á skögunum: Reykjanesskaga, Snæ-
fellsnesi og Vestfjarðakjálkanum. Flestar þeirra finnast einnig á
skögunum á Miðnorðurlandi, einkum beggja megin Eyjafjarðar,
og margar einnig á Austfjörðum, og fáeinar eru dreifðar um alla
strandlengjuna umhverfis landið. Ef litið er á útbreiðslumörkin,
virðist jrvi vera erfitt að kenna þessar tegundir við nokkurn ein-
stakan landshluta, en sé tíðleikinn einnig tekinn með í reikning-
inn, kemur í ljós, að þær eru hvergi eins algengar og áberandi
og á Vestfjörðum, enda eru Vestfirðir eina stóra landssvæðið, þar
sem þær er allar að finna. Því virðist eðlilegt að kenna þær við
þann landshluta.
Vestfjarðategundirnar spanna mjög vítt svæði og þar af leiðandi
▲ Carex adelostoma • Stellaría calycantha
9. mynd. Vestfjarðategundir. I. Tegundir, sem vaxa eingöngu á Vestfjörðum
eða á Vestfjörðum, Snæfellsnesi, Mið-Norðurlandi og Austfjörðum.
Fig. 9. Plants of the Weslern Fjords. I.