Náttúrufræðingurinn - 1971, Blaðsíða 48
252
NÁTTÚ RU FRÆÐIN G U R1 N N
a. Rosa spinosissima ----Ranunculus auricomus
x Rosa afzeliana ----Saxifraga aizoon
15. mynd. Sjaldgæfar plöntur.
Fig. 15. Rare plunts.
inu að dæma. Þess er að gæta, að um 10—15 þessara tegunda eru
mjög sjaldgæfar, koma aðeins fyrir á einum eða fáeinum stöðum,
og þarf staðsetning þeirra ekki að benda til verulegrar sæleitni.
Hitt er einnig jafnljóst, að margar íleiri tegundir hafa sæleitna
útbreiðslu, þótt þær séu hér ekki taldar sökum skorts á heimild-
um um útbreiðslu þeirra. Er þar einkum um að ræða svonefndar
algengar tegundir, þ. e. tegundir, sem eru algengar á vissum svæð-
um landsins, einkum þó á Miðnorðurlandi, þar sem útbreiðsla
plantna hefur verið bezt könnuð, og taldar eru af þeim sökum
algengar í Flóru íslands, enda þótt þær geti verið sjaldgæfar eða
vantað alveg í öðrum landshlutum og jafnvel í afskekktari hlutum
Norðurlands.
Vegna þessarar einkunnar í Flóru, hafa menn ekki gætt þess að
skrásetja þessar tegundir nákvæmlega, og er því erfitt unr gerð
útbreiðslukorta fyrir þær. Athuganir, sem gerðar hafa verið á út-
breiðslu plantna við Eyjafjörð, sýna þó eindregið, að margar þess-
ara tegunda hafa viss útbreiðslumörk inn á við eða út á við í hér-