Náttúrufræðingurinn - 1971, Síða 65
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
269
son, Jón B. Sigurðsson, Kristján Sæmundsson, Ólafur B. Guðmundsson og Þor-
leifur Einarsson.
Þátttakendur í fræðsluferðum urðu alls um 460 og hafa ekki orðið fleiri
áður.
Útg'áfustarfsemi
Af tímariti félagsins, Náttúrufræðingnum, komu út á árinu tvö tvöföld liefti,
3.-4. liefti árgangsins 1968, 100 bls., og 1.-2. hefti árgangsins 1969, 128. bls.,
eða alls 228 bls. Ritstjóri var Óskar Ingimarsson, bókavörður, en afgreiðslu-
maður Stefán Stefánsson, hóksali, Laugavegi 8, svo sem verið liefur um árabil.
Verðlaun
Félagið veitti að venju verðlaun fyrir beztu úrlausn í náttúrufræði á lands-
prófi miðskóla. Verðlaun hlaut að þessu sinni Ragnheiður Erla Bjarnadóttir,
Hagaskóla, Reykjavík.
Náttúruverndarstarfsemi
Náttúruverndarnefnd félagsins starfaði vel á árinu. Nefndin stóð fyrir og ann-
aðist Náttúruverndarsýningu, sem sett hafði verið upp á vegum British Council
í Bretlandi. Hún var opnuð í Bogasal Þjóðminjasafns 5. febrúar 1969, og var
opin þar til 16. febrúar. Síðan var hún sett upp í Hagaskóla og Menntaskól-
anum í Reykjavík. Sýningin var einnig send til Akureyrar og sett upp á vegum
Náttúrugripasaínsins þar. Eftir sýninguna þar voru stofnuð náttúruverndar-
samtök á Norðurlandi, og var stofnfundur þeirra haldinn að Laugum í Reykja-
dal i júlí. Alls sóttu um 3000 manns sýninguna. Félagið stendur í sérstakri
þakkarskuld við Þór Magnússon, þjóðminjavörð, er léði félaginu Bogasal
endurgjaldslaust, og Óttar Möller, lramkvæmdastjóra Eimskipafélags lslands, en
sýningin var flutt landa á milli með skipum félagsins endurgjaldslaust.
Þá stóð nefndin og stjórn félagsins að ráðstefnu um landgræðslumál ásamt
Æskulýðssambandi Islands í Norræna húsinu dagana 12.—13. apríl. Ráðstefnan
heppnaðist vel og upp af henni spratt stofnun landgræðslu- og náttúruverndar-
samtakanna Landverndar.
Að atiki stóð félagið ásamt Æskulýðssambandinu að útgálu bæklings um land-
græðslu og gróðurvernd, og var iitgáfa þessi styrkt af landbúnaðarráðuneytinu,
Náttúruverndarráði og Landgræðslu ríkisins. Bæklingnum, sem er vel mynd-
skreyttur, var dreift í unglingaskólum landsins.
Þá undirbjó nefndin útgáfu tveggja náttúruverndarfrímerkja í tilefni af nátt-
úruverndarárinu 1970. Frímerkin munu koma út í ágúst 1970. Þakkar félagið
Póst- og símamálastjórninni skilning á málinu og velvilja.
Fjárhagur
Félagið fékk 50.000 kr. styrk af fjárlögum til starfsemi sinnar, og rann hann
allur til útgáfu Náttúrufræðingsins.
Reikningar félagsins og sjóða, sem í vörzlu þess eru, fara hér á eftir.