Náttúrufræðingurinn - 1974, Side 48
170
N ÁTTÚRUFRÆÐI NGURINN
Agnar Ingólfsson:
Ný fjörumarfló (Orchestia gammarella
(Pallas)) fundin á Islandi
Hinn 22. maí 1971 var ég að lniga að fjörulífi við Hvassahraun
á Vatnsleysuströnd, Gullbringusýslu. Af rælni velti ég við steini í
grasi rétt ofan fjörunnar og kom þá í ljós nokkuð stórvaxin, gulleit
marfló. Vakti það sérstaka athygli mína, að marfló þessi stóð á gang-
fótum sínum, en lá ekki á hliðinni eins og marflóa er vandi, þegar
þær eru ekki á sundi. Ennfremur tók þessi marfló fljótlega undir
sig mikið stökk. Að visu er ein algeng fjörumarfló hérlendis —
Hyale nilssoni —, sem gengur á réttum kili og stekkur mikið, en sú
tegund er talsvert minni en það eintak, sem ég hafði nú fyrir aug-
urn, auk þess sem hún á heima í fjörunni sjálfri, en ekki rétt ofan
hennar. Ég velti nú við fleiri steinum og kom í ljós, að marfló
þessi var algeng á svæðinu. Var hana að finna þarna kringum og
rétt neðan við venjuleg stórstraumsflóðmörk, en á því svæði er
sjávarfitjungur (Puccinellia maritima) og túnvingull (Fesluca rubra)
ríkjandi þarna. í grasinu er einnig að finna talsvert af mjög smá-
vöxnu dvergþangi (Pelvetia canaliculata). Ekki er þó marflóin bund-
in við grasið, því hana var einnig að finna þar sem grýtt var og þá
í svipaðri hæð og í grasinu, en alls staðar var hún undir steinum.
Ég tók með mér nokkur eintök af marflónni og kom í ljós við
nánari athugun, að um var að ræða tegundina Orchestia gammar-
ella (Pallas). Fannst mér fundurinn allmerkur, þar sem tegundar-
innar er ekki getið í yfirlitsriti yfir íslenzkar marflær (Stephensen
1940), en höfundur telur, að fáar marflóartegundir hafi verið
ófundnar á Islandi, er hann tók saman ritið.
Hins vegar fór flóin fljótlega að finnast víðar eftir fundinn í
Hvassahrauni. Nokkrum vikum síðar fann ég eitt eintak undir steini
í grasi rétt ofan fjöru í Straumi sunnan Halnarfjarðar. Þá fann
Einar Árnason líffræðingur tvö eintök ofarlega í sendinni fjöru
við Skansinn í Vestmannaeyjum hinn 7. ágúst sama ár. Hinn 17.