Náttúrufræðingurinn - 1974, Page 49
N ÁTTÚRU FRÆÐINGURINN
171
1. mynd. Orchestia gam-
marella (Pallas), karldýr.
Hinir stuttu fremri þreif-
arar greina þessa tegund
frá öllum öðrum íslenzk-
um marflóm. Úr Stephen-
sen (1928).
ágúst 1972 rákust svo ég og fleiri á tegundina við Grindavík. Var
mikið af flónni undir steinum í vegjaðri, þar sem vegurinn liggur
yfir suðausturhorn Hópsins. Var flóin þarna nokkru yfir venjuleg-
um stórstraumsflóðmörkum, en ekki var það mælt nánar. Að lok-
um fundu líffræðinemar við Háskóla íslands eitt eintak undir
steini í Bákkatjörn á Seltjarnarnesi hinn 4. október 1973. Bakka-
tjörn er nú orðin hálffersk. Selta hefur verið mæld fimm sinnum
í tjörninni í september og október á árunum 1971—1973 og reynd-
ist hún að meðaltali vera 5.7%c, mest 9.3%«, en minnst 3.0%c.
Síðar kom í ljós, að fundurinn við Hvassahraun var raunar ekki
sá fyrsti hérlendis. 1 hinu mikla sjávardýrasafni Jóns Bogasonar
rannsóknarmanns er að finna nokkur eintök af þessari rnarfló, sem
Jón tók í Fossvogi í Reykjavík hinn 26. apríl 1968. Telur Jón flóna
hafa verið nokkuð algenga í innanverðum voginum, einkum ofan
við flakið af togaranum, sem liggur neðan kirkjugarðsins í voginum
sunnanverðum, og veitti hann flónni fyrst athygli einu eða tveimur
árum áður en ofangreind eintök voru tekin. Þrátt fyrir það, að ég
hafi gluggað talsvert í Fossvogsfjörur undanfarin ár, hef ég ekki
enn rekizt á Orchestia gammarella þar, og er engu líkara en hún
sé nú horfin þaðan.
Mynd 2 sýnir útbreiðslu Orchestia gammarella á Islandi eins og
hún er nú kunn. Fr útbreiðsla flóarinnar áþekk útbreiðslu nokk-
urra annarra fremur suðrænna (boreala) fjörulífvera, t. d. sagþangs
(Fucus serratus) og sölvahrúts (Ligia oceanica). Þó eru varla öll kurl
komin til grafar enn, og virðist fremur sennilegt, að útbreiðslu-
svæði tegundarinnar eigi eftir að stækka eitthvað við frekari könn-
un.
Útbreiðslusvæði Orchestia gammarella utan íslands nær frá norð-