Náttúrufræðingurinn - 1975, Síða 37
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
31
Þórdís Ólafsdóttir:
Jökulgarður á sjávarbotni út af Breiðafirði
Sérstakar rannsóknir á landgruitni íslands með tilliti til jökul-
menja hafa hingað til verið fáar eða engar. Lengi hefur verið vitað
ut frá jökulrákum, að ísaldarjöklar hafa gengið út af núverandi
landi, en hversu langt eða í hve miklum mæli hafa verið ágiskanir
einar. Forvitni mín var því vakin, er Sæmundur Auðunsson, skip-
stjóri á r/s Bjarna Sæmundssyni, sagði mér, sumarið 1973, af garði
eða hrygg djúpt út af Breiðafirði, sem hann taldi vera jökulgarð,
og ég ákvað að nota fyrsta tækifæri til að athuga þetta nánar.
í desember 1973 bauð dr. Gunnar Jónsson, fiskifræðingur, mér
með í leiðangur á r/s Bjarna Sæmundssyni á þessar slóðir. Leið-
angurinn var til steinbítsrannsókna. I desember árið eftir fór ég
aftur í samskonar leiðangur. Skipstjóri í báðum þessum leiðöngr-
um var Sæmundur Auðunsson. í fyrri leiðangrinum safnaði ég
nokkrum sýnum með botngreip, en í þeim síðari var hryggurinn
staðsettur. Siglt var fram og aftur yfir hrygginn í stefnu A-V með
u. þ. b. einnar sjómílu bili (1 sjómíla = 1852 m). Þannig fengust
rúmlega 40 snið af hryggnum. Á 1. mynd eru sýndar niðurstöður
þessara mælinga. Toppar hryggsins voru settir út á kort og sniðin
síðan teiknuð inn á beint eftir dýptarmælispappír skipsins og inn á
þau færðar þrjár dýptartölur: dýpið utan við, upp á og innan við
hrygginn.
Hryggurinn er um 100 km langur, 20—30 m hár og 800—1000
m breiður. Stefna hans er nokkurn veginn N-S. Dýpst er á hryggn-
um syðijt eða um 250 m, en norðar grynnkar á honum og þar er
dýpið minna en 200 m. í eftirfarandi töflu er lýsing á botnsýnun-
um, sem tekin voru í desember 1973; staðirnir eru sýndir á 2. mynd.