Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1977, Blaðsíða 22

Náttúrufræðingurinn - 1977, Blaðsíða 22
lands, er sígur og rís og um hraun- rennsli inn og út úr kvikuhólfinu. Sem dæmi um niðurstöður líkan- reikninga má nefna eftirfarandi tvö dæmi: Meðalrishraði miðju rissvæðisins frá því í mars 1976 hefur verið um 7,1 mm/sólarhring á milli siga. Þetta samsvarar því að rennsli inn á svæðið sé nokkuð stöðugt og á bilinu 2—5 m;!/s eða álíka rnikið og rennsli í Elliðaám við Reykjavík. í siginu, er varð 27. apríl 1977, seig norðurendi stöðvarhússins um 19,7 mm miðað við suðurendann. Þetta samsvarar 91 cm landsigi á miðju svæðisins og um 0,03—0,06 km;! hraun- rennslis út úr kvikuhólfinu, sem er um það bil tíundi hluti af rúmmáli Mývatnseldahrauns. Meðalrennslis- magnið var fyrsta sólarhringinn á bil- inu 200—600 m3/s eða alli að þre- falt rennsli Jökulsár á Fjöllum. Ákaflega erfitt er að segja til um hraða kvikunnar, er hún rennur úr kvikuhólfinu og út eftir sprungu- sveimnum. Þó er ljóst að skjálfta- virkni hófst ekki í Bjarnarflagi hinn 20. apríl 1977 lyrr en 5 tímum eftir að sig byrjaði. Fjarlægðin á milli Leir- hnjúks og Bjarnarflags er um 10 km og gæti hraðinn á brotahreyfingunni og þar með á kvikunni því verið um 2 km/h eða 0,5 m/sek. Þennan hraða má einnig áætla á annan hátt. Út frá víkkun sprungna, sent nam um 2 m í Bjarnarflagi, má ætla að gangurinn, sem kvikan rann út í, sé jafn breiður, þ. e. 2 m. Sé gangurinn auk þess 1000 m djúpur og meðalrennsli út í hann fyrsta sólarhringinn 500 m3/s verður hraðinn 0,25 m/s. Þetta er helmingi minna en fékkst út með fyrri aðferð- inni en verður samt að teljast í góðu samræmi miðað við þær forsendur, er gefnar eru. Hugsanlegt framhald jarðhrceringa við Kröflu, eldgosaspár Erfitt er að spá með nokkurri vissu um framhald jarðhræringa við Kröflu og Námafjall. Veldur þar mestu hve ófullkomin vitneskja manna er uni eðli og uppruna eldgosa. Þar sem tek- ist hefur að spá fyrir um eldgos er- lendis með góðum árangri er um eld- i jöll að ræða, sem gjósa nokkuð reglu- lega og haga sér svipað í hvert sinn. Náið eftirlit með eldfjöllum, með gosspá í liuga, eru ný fræði hér á landi og því lítil reynsla, sem unnt er að byggja á. Undantekning frá þessu er þó Kröflusvæðið. Þar er það einkum tvennt, sem unnt er að byggja hug- myndir um framhald jarðhræringa á. í fyrsta lagi hefur verið fylgst mjög náið með hegðan þessarar megineld- stöðvar frá því á miðju ári 1975 og má fullyrða að ekkert annað virkt eld- fjall hér á landi sé lietur þekkt. Hefur komið í ljós ákveðið hegðunarmunst- ur af hreyfingum fjallsins (sjá 6. mynd) svo og líkan, sem skýrt getur helstu megindrætti þessara viðburða. Á grundvelli mælinga og athugana hefur á síðustu mánuðum verið unnt að segja með sæmilegri nákvæmni fyr- ir um það hvenær skjálftum fjölgar og þar með hvenær hættuástand skap- ast vegna landsigs eða eldgoss. í (iðru lagi er til nokkuð góð samtímaheim- ild um hina langvinnu Mývatnselda á 18. öld. Eldgos og jarðhræringar stóðu þá yfir með hléum í rúm 5 ár. Nákvæmlega sami hluti sprungu- 196
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.