Náttúrufræðingurinn - 1977, Síða 39
1
Niðurstöður
Niðurstöður smásjárgreininga á
bergtegundum eru dregnar saman í 4.
nrynd, sem sýnir skiptingu í basískar,
ísúrar og súrar bergtegundir og er
jafnframt reynt að gefa lrugmynd um
hvort urn er að ræða innskotsberg
(grófkornótt) eða ekki.
Rétt er að taka fram, að smásjár-
greining bergtegunda leiðir fremur
til vanmats á magni ísúrra og súrra
bergtegunda en ofnrats og því ber að
skoða tölur okkar um magn þessara
tegunda sem lágmarkstölur.
Niðurstöður mælinga á segulmögn-
un eru dregnar saman í töflu If. Ef
við lítum á sýnatökustaðina Jivern
fyrir sig, þá verða niðurstöður okkar
sem hér segir:
Breiðafjörður Bl. Á þessunr stað
náðust alls 73 sýni og reyndust 68
vera basísk, þar af 20 úr díabasi og
tvö glerkennd. Tvö voru ísúr og
þrjú úr líparíti. Þessi samsetning
safnsins er mjög svipuð og fundist
hefur í íslenska jarðlagastaflanum,
t. d. við Reyðarfjörð (Walker, 1966),
þar senr 83% bergsins er basískt, 3%
ísúrt og 8% súrt og 6% set.
Ummyndun er freinur lítil í basalt-
inu á stað Bl, en nokkur í öllum
díabassýnunum. Ein 6 basaltsýni
eru blöðrótt og ferskleg og gætu,
ásamt hinum glerkenndu sýnum,
verið upprunnin við gos á grunnu
vatni á kvartertíma.
Breiðafjörður B2. Af 12 sýnum
héðan reyndust 6 vera af súru bergi,
líparíti. Þetta háa hlutfall súrs
bergs þykir okkur benda til nálægð-
ar megineldstöðvar, jafnvel þótt
ekki sé fullkomlega öruggt að sýnið
sé dæmigert um berggrunn á sýna-
tökustað. Ef sýnin vaau af aðfluttu
efni, rnætti búast við að blöndun
4. mynd. Hlutlöll basískra (B), ísúrra (í)
og súrra (S) bergtegunda í sýnum. Tölur
sýna fjölda linullunga 1 hverjum hópi.
Skástrikun sýnir hlutfall gróikornótts
(djúp-)bergs. — Diagrammatic representa-
tion of the ralios of basic (B), inter-
mediate (I), and acid (S) rocktypes in the
dredge liauls. The nurnber of boulders
of each lype is indicated. Shading repres-
enls coarse-grained (intrusive) rocks.
213