Náttúrufræðingurinn - 1978, Side 35
hófust með því, að 1969 fann ég fram-
an við mynni þeirra sandorpinn
hraunskika, sem sýnilega hafði runn-
ið niður eftir Landsgljúfrum.Hraun-
ið rakti ég til upptaka, annars vegar
í Hljóðaklettum, hins vegar í Randar-
hólum á Hólssandi, og reyndust þessi
gljúfrahraun vera tvö. Meiri hluti
þeirra var burtu rofinn og aldurinn
rúml. 8000 ár skv. öskulagatímatali
(Sigurvin Elíasson, 1974). Jökulsár-
gljúfur voru auðsæilega ekki venjuleg
árgljúfur, heldur mjög grafinn og út-
víkkaður gljúfradalur með tröllaþrep-
um og Jökulsá sem smálækur á botn-
inum. Menjar vatnahlaupa sáust hátt
og lágt og lýstu sér í 1—4 km breiðu
gljúfrasvæði með grjótum og þurrum
farvega- og gljúfraflækjum mishátt í
dalnum, þ. á m. vatnslausum gljúfr-
um og þurrum fossum, stöllóttum
malarhjöllum og veggbröttum hamra-
eyjum.
Ritgerðir þeirra Hauks og Kristjáns
voru mjög girnilegar til fróðleiks, en
stórhlaupasaga Jökulsár virtist all-
miklu flóknari. í haust sem leið (1976)
l'ór ég nokkrar skoðunarferðir í
Gljúfrin og miðaði við snið þvert yfir
flóðasvæðið frá Söndunum og suður
að Selfossi. Sniðin eru merkt á kort-
ið A—A til E—E (5. mynd).
Setlög kringum Asbyrgi
Ásheiði er öll úr Stóravítishrauni,
en yngsti hluti þess er varla eldri en
frá Búðaskeiði (Hólkotsskeiði?), þ. e.
10—11000 ára, að dómi Kristjáns Sæ-
mundssonar (1973), og Ásbyrgi er
grafið í það. Ýmiss konar setlög eru
]tó hér á hrauninu og er hentugt
vegna þess, sem á eftir fer, svo og
kenningar Kristjáns, að gera sér grein
fyrir aldri þeirra og uppruna. Elst
setlög kringum Ásbyrgi eru:
a) Melhjallinn vestan við Ásbyrgi,
sem Meiðavellir standa á, og er ann-
aðhvort hlaupset frá ísaldarlokum
eða óseyri úr sjó. Lega lians og yfir-
borðshalli geta bent til liins síðar
nefnda og hæð hans yfir sjó (40—45 nr)
er hin sama og strandhjalla hjá Ferju-
bakka og Skinnastað. Hjallastubbur-
inn er meðfram úr velktu, stórgerðu
grjóti og jarðvegur ofan á, forn. Þar
er m. -a. nrjög þykkt, svart öskulag
(Xö) sem lrér finnst sunrs staðar, unr
8000 ára ganralt (Elíasson, 1974).
b) Uppi á Eyjunni, hamrinum
mikla í Ásbyrgi, er mikil, lúð grjót-
dreif, allforn, einkunr á brúnunum
báðunr, en líka önnur yngri (sjá síð-
ar). Á austurbarmi Ásbyrgis er einnig
skoluð og velkt grjótdreif, bæði forn
og tiltölulega ung.
c) 2—3 km suður af Ási eru Hól-
arnir írrilli Landsgljúfra og Kvíafar-
vegs — jökulurð austan til, upptyppt
í stórgrýtta smálróla, en sunnan og
vestan til blásið roksandshólasvæði,
hallandi fínlögótt til norðurs, talsvert
nriklu eldra en öskulagið H4 (4500
ára, C14-aldur, helmingunartími 5730
ár, sbr. Sig. Þórarinsson, 1971). Bein
tengsl roksandslrólanna við Jökulsár-
lilaup eru óljós.
d) Vestan og sunnan urðar- og rok-
sandshólanna er flöt melbunga, Mel-
ar, sem takmarkar austurbakka Kvía-
farvegs alllangt suður. Sá farvegur,
þurr, grafinn í klöpp og upp í 1,5 km
breiður, er mikilfenglegur flóðfar-
vegur, sem liggur úr brún aðalgljúfr-
anna skammt norðan Hljóðakletta
og norður í Ásbyrgisbotn. Þessi mel-
161
11