Náttúrufræðingurinn - 1978, Blaðsíða 45
6. mynd. Vítt klettagljúfur í Forvöðum. Réttarbjarg til vinstri með 15—20 m háum
hömrum. Ör bendir á 3000 ára gamla hnullungahjallann á bjarginu, með um 7 m
hárri brún. — A wide rocky canyon in the Forvöd Valley, part of the Jökulsá Canyons,
probably eroded in the third great flood. The arrow points to a bouldcr terrace,
deposited in the second greal flood.
brot á Svínadal, Gráimór andspænis
Rauðhólum o. fl. Allir eru þeir leifar
af feiknastórgerðri setfyllu, sem sest
hefur í Jökulsárdal á löngu svæði,
allir elclri en öskulagið H3 og finnst
það á þeim flestum, en hefur víða
skolast burtu. Um aldurinn kemur
þrennt til greina: a) Að setfyllan sé
frá hlaupinu fyrir ca. 4600 árum, b)
að hún sé frá hlaupinu fyrir ca. 3000
árum, c) að hún sé frá óþekktu stór-
hlaupi.
Lausleg könnun í hjöllunum sýnir
meðalsteinastærð á bilinu 2—25 cm
(þvermál), sumt smærra, surnt stærra.
í neðsta gljúfrinu nú eru eyrar breyti-
legri, meðalsteinastærð margfalt
minni og lagskipting eftir kornastærð,
sem ekki sést í stóru hjöllunum. Er
ljóst að geysilegt vatnsrennsli þarf til
að flytja botnskrið, slíkt sem í stóru
hjöllunum. Þeir hafa luigsanlega
myndast í hlaupinu fyrir 4600 árum,
en gegn því mælir að H4 finnst þar
ekki. Fleira bendir til, að þeir hafi
myndast í hlaupinu fyrir 3000 árum.
Það styðja snið á grónum klettastöll-
um í Vígabrekku (snið XVI) um 210-
215 m y. s., upp og austur af Víga-
bjargi (200 m y. s.). H3 er þar á möl
og sandi neðst í þunnum jarðvegi, en
vantar víða. Hærra í brekkunni eru
bæði Ijósu lögin. Fátt er að segja um
þriðja möguleikann.
Laufey Hannesdóttir, vatnafræðing-
ur, hefur reiknað eftir Manningjöfnu,
171