Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1978, Qupperneq 65

Náttúrufræðingurinn - 1978, Qupperneq 65
tíð í jöklinum, bæði í Grímsvötnum og sunnan þeirra. Sem dæmi má nefna, að árið 1873 varð mesta ösku- gos, sem vitað er um í Grímsvötnum (Þórarinsson 1974). Við nánari könn- un á vesturhluta Vatnajökuls mun lega þessa öskulags koma betur í ljós, og fæst þá úr því skorið frá hvaða eld- stöð lagið er komið. Hér hafa verið nefnd tvö dæmi, sem sýna að könnun á öskulögum með íssjá opnar nýjar leiðir í rannsóknum á afkomu jökla og sögu eldgosa. Könnun á gerð jökulbotns Þegar ekið er eftir jökli, má greina í íssjánni talsverðan mun á styrk botn- endurkasts frá einum stað til annars. Þessu veldur þrennt. Fyrst má telja mismunandi rafeiginleika jökulbotns. Þeir eru háðir berggerð, en mestu ræður líklega vatnsleiðni bergsins og magn uppleystra efna í jarð- vatninu. í öðru lagi draga öskulög í jöklinum úr styrk rafsegulbylgjunnar, og loks getur lögun botnsins haft áhrif á styrk endurkasts. Á svæðum þar sem áhrif botnlögunar breytast lítið frá einum stað til annars og unnt er að meta áhrif öskulaga á styrk end- urkasts, fást gögn, sem lýsa rafeigin- leikum jökullíotnsins. En líklega er of mikil bjartsýni að telja, að þau gögn megi nota til þess að gera jarð- fræðikort af jökulbotni, sem t. d. greindi að móberg, bólstraberg og blá- grýti. Líklegra er, að gögnin lýsi vatnsleiðni bergs og magni uppleystra efna í jarðvatni undir jöklinum. Því er ástæða til þess að kanna nánar, hvort íssjáin geti greint jarðhitasvæði undir jiikli. Verður það sennilega best gert með því, að bera gögn frá ýms- um svæðum saman við niðurstöður frá þekktunt jarðhitasvæðum við Grímsvötn og Kverkfjöll. Nokkrar mælingar hafa verið gerð- ar með íssjá við Grímsvötn. Við vatns- jaðarinn sást greinilega af lögun vatnsflatar hvar vatnið þraut. Á rnæli- stöðum við austurjaðar Grímsvatna var þó ekki unnt að greina mun á styrk endurkasts frá vatnsfletinum og berginu við vatnsbakkann. Líklega er mikið jarðhitavatn í berginu og end- urkast frá botninum því nærri eins sterkt og frá sjálfum vatnsfletinum. í Grímsvötnum vakti einnig athygli, að neðra borð íshellunnar var ekki reglulegt. Inni á miðju vatninu risu nokkrar hvelfingar upp í íshelluna, um 500—1000 m breiðar og 50—100 m háar. Þessar hvelfingar hljóta að vera bræddar af iðustraumum, sem kyntir eru af hlýjustu svæðum á botni Gríms- vatna. Á Mýrdalsjökli kom víða fram mjög mismunandi sterkt endurkast frá botni. Frekari reynslu þarf að afla áður en unnt verður að lesa úr þeim gögnurn nánari fróðleik um jarðhita- svæðið í jöklinum og unnt verður að skera úr um, hvort vatnslón leynast nú undir Mýrdalsjökli. Aðvörun um jöliulsprungur Jökulsprungur koma greinilega fram í íssjánni og eykur það mjög ör- yggi við mælingar á jökli. Að vísu er íssjáin ekki gerð til þess að kanna ná- kvæmlega efstu lög jökuls, og auk þess sér hún aðeins til beggja hliða við snjóbílinn. íssjáin yrði því ekki vör við einstaka sprungu, sem snjóbíll stefndi á endilanga. Hins vegar kann- ar íssjáin stórt svæði, og flest sprungu- 191
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.