Náttúrufræðingurinn - 1978, Síða 75
Til viðbótar fjárveitingum Alþingis
kemur svo Vísindasjóður, en þar er
hver og ein umsókn metin af nefnd
skipaðri vísindamönnum. Enda þótt
Vísindasjóður hafi komið mörgu góðu
til leiðar þá er hann iítils megnugur,
þegar á heildina er litið. í nágranna-
löndum okkar eru vísindasjóðir mjög
öflugir og í gegnum þá rennur um-
talsverður liluti af fjárframlögum til
rannsókna.
Ég nefndi það að við værurn meðal
þeirra þjóða í Vestur-Evrópu sem
minnstu verja til rannsókna. Hér er
})ó vissulega ekki minni þörf fyrir
rannsóknir, frekar meiri. Nágranna-
þjóðir okkar verja hlutfallslega tvö-
falt til þrefalt meira fé til rannsókna
en við ísiendingar. Ég tel að þetta sé
ekki gert af metnaði, heldur sé ein-
faldlega litið á rannsóknir sem góða
fjárfestingu. Auðvelt er að benda á
fjölmörg verkefni hér á landi sem
krefjast umfangsmikilla rannsókna
áður en við getum nýtt gæði þessa
lands eins og kostur er eða rekið at-
vinnutæki okkar á sem hagkvæmastan
hátt.
Skammsýni þeirra sem ár eftir ár
hefta eðlilega þróun rannsóknastarf-
semi hér á landi með einföldum pró-
sentureikningi er íslensku þjóðinni
dýr.
-Ég tel að fordæmi nágrannaþjóða
okkar sýni að við eigum í senn að efla
rannsóknir okkar verulega jafnframt
því sem við felum Vísindasjóði að
hafa megináhrif á skiptingu fjár til
þessarar starfsemi.
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
Veðurfar árið 1977
Vetturinn 1976—1977 var mjög þurr og
l)jartur sunnan lands og vestan og á Suft-
vesturlandi var nánast snjólaust.
í Reykjavík var þessi vetur talið frá
desember til mars hinn þurrasti frá upp-
hafi samfelldra úrkomumælinga 1920, en
tveir vetur liafa verið ennþá sólríkari.
Var það árin 1946—47 og 1965—66. Fe-
brúar var mjög þurr um allt land.
Norðaustantil á landinu snjóaði mikift
i janúar og mars og þar voru mikil snjóa-
lög. Mjög lítið var um hvassviðri og
storma.
1 janúar var hitinn á öllu landinu 1°
undir meðallagi, í febrúar var hann um
meðallag, en í mars var vel lilýtt þar til
síðustu daga mánaðarins og þann mánuð
varð 1 ° hlýrra en í meðalári.
Apríl var mjög kaldur einkum á norð-
austanverðu landinu en þar var allt að
3° kaldara en í meðalári. Meðalhitinn á
öllu landinu var li/J,0 undir meðallagi, og
úrkoma 1 /i0 meiri en venja er til. Kulda-
tíð liélst fram um miftjan maí, en þá
lilýnaði og mánuðurinn í heild varð í
meðallagi lilýr. Mjög þurrt var á Norður-
201