Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 26

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 26
Ritfregn ÍSLENZK FORNRIT 13. BINDI, HARÐAR SAGA Þórhallur Vilmundarson og Bjarni Vilhjálmsson gáfu út fyrir Hið íslenzka Fomritafélag 1991 Islensk fornrit hafa löngum gagnast fræði- mönnum sem heimild og íhugunarefni um náttúrufar og náttúmviðburði. Um náttúrufarið hafa menn reyndar dregið mjög ólíkar álykt- anir. Er í því sambandi fróðlegt að bera saman það sem Þorvaldur Thoroddsen (í Andvara 1916) og Sigurður Þórarinsson (víða í grein- um og bókum) segja um árferði fyrr á öldum, áður en rannsóknir á ískjörnum skáru úr um hvað rétt er í því efni. í fornritunum er oft fjallað um náttúmviðburði í bland við hindur- vitni. Glöggir rýnendur hafa þó fundið flestu stað og rennt stoðum undir að rétt sé frá greint með könnun á vettvangi. í seinasta bindi Islenzkra Fornrita eru fjórar sögur og átta þættir. Fylgir að venju ítarlegur formáli þar sem grafist er fyrir um rætur sagnanna, ritunartíma og stundum höfund. Það er einkum formálans vegna að hér er vakin athygli á þessu bindi Fomritanna, en aðalhöfundur hans er Þórhallur Vilmundar- son. Þar er að vissu leyti sýndur nýr flötur á sagnagerðinni með því að lesið er í örnefnin. Um sumar sagnanna er sýnt hvemig sögu- persónur og atburðir er skáldað kringum ör- nefni sem mörg hver eru lýsandi um landslag eða staðhætti þegar að er gáð. Mörg af ör- nefnunum í Harðar sögu eða Þorskfirðinga sögu eru ekki beint árennileg sem náttúru- nöfn. En skýringar útgefanda, sem jöfnum höndum styðst við athugun á staðháttum, samanburð við skyld örnefni og við málfræði- kunnáttu, eru settar fram af rökvísi og stund- um að manni finnst af næmu innsæi. í sögun- um sjálfum er fjöldi örnefnaskýringa, flestar tengdar persónum eða atvikum. Fæst af því stenst gagnskoðun útgefanda. Þótt menn kunni að efast um réttmæd sumra örnefnaskýringa hans verða þær flestar ágengar við hvern þann sem skoðar sig um eða þekkir til á vettvangi örnefnanna. Söguhetjur Harðar sögu taka á sig gervi alkunnra kennileita, og líkt fer um hálftröll annarra sagna og þátta sem hjara þó sum sem fremur mannlegar sögupersónur. Af einstökum köflum bókarinnar er ástæða til að nefna sérstaklega Bergbúa þátt, en aðal- efni hans er Hallmundar kviða. f henni er lýst í tyrfnu skáldamáli eldgosi og vatnsflóði. Út- gefandi telur að lýsingin geti átt við uppkomu Hallmundarhrauns. Víst er að vettvangur þess er kveður er á þeim slóðum, og aldur hrauns- ins kemur þar heim og saman við. Þessi niður- staða útgefanda mætti verða jarðfræðingum hvati til að huga nánar að aldri hraunanna úr Langjökli norðvestanverðum, einkum þeirra sem upprunnin eru inni á jöklinum, og um- merkjum flóðs sem gætu hafa varðveist niður með Hvítá í byggð. Gæti verið að Landnámu- sögnin um vatnsveidngu Músa-Bölverks eigi rætur að rekja til hálfgleymdrar sagnar um að Hvítá hafi eitt sinn hrakist úr farvegi sínum og þá af völdum hraunrennslis? Ýmislegt smálegt verður útgefanda tilefni ítarlegrar umfjöllunar. Sem dæmi má nefna viðurnefni Þorsteins tjaldstæðings og mis- kunnarverk hans gagnvart umkomulausum mönnum. Mér varð á að láta hugann reika kringum hallærið sem þar er minnst á. Það virðist hafa orðið of snemma til að átt geti við óöld í heiðni. Gæti þarna verið ýjað að móðuharðindum eftir Eldgjárgosið ~930? Þegar þátturinn var skrifaður var eflaust þörf á að minna landslýðinn á að breyta kristilega við náungann. Kannski var þessi sögn rifjuð upp sem dæmisaga um hvernig menn skyldu breyta við flökkulýð, en segja má að hann hafi öðlast réttindi í góðbúum landsmanna með gildistöku Jónsbókar seinna á þeirri sömu öld og þátturinn var færður í letur. Ekki fékk ég varist þeirri hugsun að sumt hefði verið tekið öðrum tökum í formálum hinna fyrri binda ef þetta hefði verið 60 árum fyrr á ferðinni. Á þeim áratugum sem liðnir eru frá útgáfu næsta Islendingasagnabindis á undan má raunar segja að hal'i opnast nýtt svið þar sem eru íslensku örnefnin. Ekki er undur að þess sjái hér stað þar sem aðalút- gefandi Harðar sögu á þar stærstan hlut. Kristján Sæmundsson Náltúrufræðingurinn 62 (1-2), bls. 20, 1993. 20
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.