Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1993, Side 53

Náttúrufræðingurinn - 1993, Side 53
C. Urey árið 1973 að árekstur halastjörnu á jörðina hefði eytt risaeðlunum og öðrum lífverum, enda átti sú hugmynd við lítil rök að styðjast. Árið 1980 birtust fyrstu gögnin sem renndu stoðum undir hug- mynd Ureys, þegar annar bandarískur Nóbelsverðlaunahafi, Luis W. Alvarez, og félagar hans bentu á að málmurinn iridíum fyndist í miklum mæli í þunnu setlagi á mörkum krítar- og tertíer- tímabilanna. Þetta reyndist mjög mikil- væg uppgötvun, þar sem magn iridíums er um 20 ppb (jafngildir 20 mg í tonni) í setlaginu, eða mörg hundruð sinnum meira en í öllum öðrum bergtegundum á jörðu. Hins vegar finnst þessi eðalmálmur í ríkum mæli í loftsteinum, smástimum og halastjömum. En iridíum finnst líka í miklu magni í möttli jarðar og getur því einnig borist upp á yfirborðið í eldgosum. Andófsmenn loftsteinakenningarinnar héldu því fram að dauðinn mikli og hvarf risaeðlanna stöfuðu af eldgosum á Indlandi, og vitnuðu til dæmis oft til Skaftárelda á íslandi árið 1783 og í móðuharðindi sem dæmi um slæm um- hverfisáhrif eldgosa. Þannig stóð látlaust rifrildi í um einn áratug, þar sem frekari vitneskja kom ekki fram til lausnar deilunni. Að vísu fundust kvarskristallar í setlaginu á mörkum krítar og tertíers, sem báru merki um að hafa myndast við mjög háan þrýsting og styrktu því enn frekar loftsteinakenninguna. ELDFJALLAFRÆÐIN FLÆKIST í MÁLIÐ í október 1988 var mér boðið á ráðstefnu í Utah, sem helguð var ham- förum í jarðsögunni, og snerist sá fundur upp í harða deilu um mikilvægi eldgosa eða loftsteina sem orsök útdauðans mikla á mörkum krítar- og tertíertímabilanna. Eg flutti þar erindi um samband eldgosa og loftslags (Haraldur Sigurðsson 1990) og lagði áherslu á hvernig brennisteinsgas frá eldgosum myndar brennisteinssýruúða í heiðhvolfínu, en sá brennisteinshjúpur endurkastar síðan sólargeislum og veldur kælingu á yfirborði jarðar í nokkur ár eftir mjög stór sprengigos. Ég benti á að mesta kæling sem búast mætti við væri um 3 til 4 stig eftir stærstu gos sem þekkt eru í jarðsögunni, og væri því eldvirkni ólíkleg skýring á miklum útdauða. Sumum eldfjallafræðingum fannst ég vera of íhaldssamur og gera of lítið úr hamförum af völdum eldgosa, en tölurnar tala sínu máli. Ekki hafði ég þá hinn minnsta grun um að aðeins tveim árum síðar mundi ég koma fram í ræðustól með kenningu um hvemig árekstur loftsteins eða halastjömu við jörðina hefði myndað enn meiri brennisteinshjúp en nokkurt eldgos, og orsakað snögga loftslagsbreytingu sem hefði orðið risaeðlunum að aldurtila, eins og skýrt er frá hér á eftir. Þegar hér var komið sögu var ekki annað l'undið á mörkum krítar og tertíers en iridíumfrávikið í leirlagi, sem er um 1 til 3 cm á þykkt, og nokkrir kvars- kristallar. Enn vantaði aðaleinkenni bæði eldgosa og áreksturs loftsteina eða halastjama, þ.e. gler. Við mikla árekstra loftsteina við jörðina er þrýstingurinn og hitinn svo mikill að jarðskorpan um- hverfis gíginn bráðnar og slettist hátt upp í heiðhvolfið, þar sem bráðin storknar sem glerdropar, svonefndir tektítar. Þeir dreifast síðan um jörðina alla, eins og haglhríð úr risavaxinni fallbyssu. Tektítar hafa annað lag og útlit en gler eða gjóska sem myndast í eldgosum og auk þess er efnasamsetning tektítglers önnur, þar sem hún er nær eingöngu háð gerð jarð- skorpunnar þar sem áreksturinn verður. Hins vegar er kvika úr eldfjöllum aðallega tengd efnasamsetningu möttuls jarðar. Ef gler fyndist á mörkum krítar og tertíers voru miklar líkur á að hægt væri að skera úr deilunni um hvort tegundirnar hefðu dáið úl vegna eldgosa eða loftsteina- áreksturs. Auk þess gæti efnasamsetning glersins sagt til um staðsetningu eld- 47
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.