Náttúrufræðingurinn - 1993, Blaðsíða 108
6'80%o
Þúsundir ára
3. mynd. Styrkur (6) þungu samsætunnar '“O í íslögum úr borkjama frá NV-Grænlandi. Kúrfan
nær yfir síðustu 130.000 árin. Hægt er að túlka breytingar í styrk þungu samsætunnar sem
breytingar á hitastigi. Há 6-gildi samsvara hlýju eða mildu loftslagi en lág gildi samsvara köldu
loftslagi. Háu 6-gildin lengst til vinstri á myndinni endurspegla síðasta hlýskeið, sem nefnt
hefur verið eem, en einnig er eftirtektarvert hversu loftslag hefur verið breytilegt á síðasta
jökulskeiði.
eldgos til að aldursgreina ískjama. Þetta
hjálpar til dæmis mjög til að bera saman
þær upplýsingar um veðurfar sem er að
finna í rituðum heimildum og mælingar
okkar á hita í einstökum árum á sögu-
legum tíma.
Með fyrirliggjandi gögnum á þyngd íss
frá Grænlandi er hægt að skyggnast aftur
í tímann um ein 120.000 ár. Mælingamar
sýna að veðurfar hefur verið tiltölulega
stöðugt síðustu 10.000 árin. Þá verða hins
vegar verulegar breytingar á þyngd íssins.
Hann léttist verulega, en það endurspeglar
ísöldina, og gildin haldast lág næstu
hundrað þúsund árin, en þó með tölu-
verðum sveiflum. Fyrir um 120.000 árum
hækka mæligildin snögglega og em jafhvel
hærri en þau sem mælast í úrkomu í dag.
Við vitum nú að þessar breytingar á
þyngd íssins endurspegla í raun breytingar
á hitastiginu á þeim tíma sem snjórinn
féll á jökulinn. Þungi ísinn samsvarar þá
hlýju eða mildu loftslagi en létti ísinn
kaldara loftslagi. Háu gildin sem mælast
frá því fyrir 120.000 ámm eru því frá
síðasta hlýskeiði en lágu gildin frá síðasta
jökulskeiði (3. mynd). Eins og sést á 3.
mynd komu einnig fram við mælingamar
afar merkilegar og örar sveiflur, sem
bersýnilega áttu sér stað í veðurfari sfðasta
jökulskeiðs. Samkvæmt þessu er ljóst að
síðasta jökulskeið hefur ekki verið sam-
felldur fimbulvetur, heldur hafa kaflar
með hlýju loftslagi rofið helkulda hins
langa vetrar, þannig að veðurfar á jökul-
skeiðinu hefur bersýnilega sveiflast mjög
mikið.
Mælingar á þyngd vatns í ískjömum
frá Grænlandi sýna mjög gott samræmi á
milli kjama, þrátt fyrir að meira en 1400
km fjarlægð sé á milli borstaða. Það er
því trú manna að þessar þyngdarsveillur
í ís síðasta jökulskeiðs endurspegli veður-
farssveiflur sem áttu sér stað á öllu
Norður-Atlantshafssvæðinu en séu ekki
svæðisbundnar veðrasveiflur.
102