Fréttablaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 8
8 13. júní 2009 LAUGARDAGUR
1. Hver verður líklega settur
ríkissaksóknari í málefnum er
varða bankahrunið?
2. Hvað heitir bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins í Kópa-
vogi?
3. Fyrir hversu háa upphæð
var C. Ronaldo seldur til Real
Madrid?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 62
FR IGG K E EN NEWPORT H2 K E EN CORONADO
Léttur fl ísfatnaður úr Polartec® Power Stretch®,
efni sem teygist á fjóra vegu og heldur vægum
hita á líkamanum. Fæst líka í svörtu.
Flottir barnasandalar með táavörn, frönskum
rennilás og mjög góðu gripi. Fæst líka í appelsínugulu.
Barna strigaskór með góðum sóla. Með kaupum á
Coronado skónum styrkir þú National Wildlife Federation
sem vinnur að verndun dýralífs í heiminum.
bolur og buxur barnasandalar barna strigaskór
Verð bolur: 7.800 kr.
Verð buxur: 6.800 kr.
Verð: 6.200 kr. Verð: 6.500 kr.
Njóttu góðrar máltíðar
með vinum og vanda-
mönnum með SS grill-
kjöti.
Ljúffengur krydd-
lögurinn dregur fram
það besta í kjötinu og
vel grillað kjöt laðar
fram brosið á fólkinu
þínu.
Grillkjötið frá SS –
fyrir sérstakar
stundir.
Grill,
gleði og
samvera
www.ss.is
UMHVERFISMÁL Íbúar í nágrenni
sorpurðunarstaðar Sorpstöðvar
Suðurlands í landi Kirkjuferju-
hjáleigu hafa hafið undirskrifta-
söfnun gegn framlengingu starfs-
leyfis stöðvarinnar á umræddu
svæði. Undirskriftirnar verða
sendar Umhverfisstofnun.
Nú liggur fyrir tillaga að starfs-
leyfi fyrir sorpstöðina. Hún gerir
ráð fyrir að leyfi verði veitt til urð-
unar á sorpi í Kirkjuferjuhjáleigu
næstu sextán árin. Magnið sem
urða má á ári er 30 þúsund tonn og
því væri verið með samþykkt til-
lögunnar að veita heimild til urð-
unar á 480 þúsund tonnum sorps.
„Við íbúar í næsta nágrenni
Sorpstöðvar Suðurlands mót-
mælum harðlega því að veitt sé
starfsleyfi til lengri tíma en til
01.12.2009 og þeim yfirgangi gagn-
vart okkur sem felst í tillögunni“,
segir meðal annars í athugasemd-
um íbúanna, en 1. desember næst-
komandi rennur leyfið út.
Íbúarnir benda á að sorpstöð-
in hafi margbrotið gildandi deili-
skipulag frá 1993.
„Engin hæðamörk deiliskipu-
lagsins hafa verið virt og ljóst er
að það magn sorps sem þegar er
komið á svæðið er langt umfram
það sem skipulagið gerir ráð
fyrir …“
Þá minna íbúarnir á nálægð
sorpstöðvarinnar við laxveiðiá,
blómleg landbúnaðarhéruð, úti-
vistarparadís og þéttbýli og áhrif
hugsanlegrar mengunar þar á.
Loks benda þeir á að úrskurð-
arnefnd skipulags- og byggingar-
mála hafi kveðið á um að óheimilt
sé að breyta skipulagi svæðisins
þar sem þar hafi verið framkvæmt
í ósamræmi við skipulag, fyrr en
hin ólöglega bygging, eða bygging-
arhluti, hafi verið fjarlægð, jarð-
rask afmáð og starfsemi hætt.
Ólafur Áki Ragnarsson, sveit-
arstjóri í sveitarfélaginu Ölfusi,
segir að áætlanir hefðu verið uppi
um að Vesturland, höfuðborgar-
svæðið, Reykjanes og Suðurland
yrðu saman í einu sorpsamlagi.
Komið yrði á fót flokkunar- og
umhleðslustöð sorps á Suðurlandi.
Þessi áætlun væri nú úr mynd-
inni þar sem tillaga þar um hefði
nýverið verið felld á aukaaðalfundi
í Sorpstöð Suðurlands.
Hins vegar hefði á fundinum
verið ákveðið að stofna starfshóp
sem yrði skipaður fulltrúa hvers
aðildarfélags Sorpstöðvar Suður-
lands. Hann skuli leita staðsetn-
ingar fyrir nýjan urðunarstað í
stað Kirkjuferjuhjáleigu.
„Eftir að mál hafa skipast svona
þarf að finna nýjan urðunarstað,“
segir Ólafur Áki. „Kirkjuferjuhjá-
leiga er ekki inni í myndinni því ég
tel að ekki sé pólitískur vilji fyrir
því.“ jss@frettabladid.is
KIRKJUFERJUHJÁLEIGA Þetta er meðal þess sem íbúar í nágrenni sorpurðunarstaðar-
ins í Kirkjuferjuhjáleigu vilja losna við úr umhverfinu.
Undirskriftir gegn
sorpi á Suðurlandi
Íbúar í nágrenni sorpurðunarstaðarins í landi Kirkjuferjuhjáleigu safna nú
undirskriftum gegn endurnýjuðu starfsleyfi Sorpstöðvar Suðurlands á svæðinu.
Starfshópur mun fljótlega hefja leit að öðrum stað til að urða sorp á.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
PAKISTAN, AP Tvær sjálfsmorðs -
árásir voru gerðar í Pakistan í
gær, önnur á mosku og hin á trú-
arlegan skóla. Að minnsta kosti
níu létu lífið og yfir 100 særðust
í árásunum. Sjálfsmorðsárásir
hafa verið mjög algengar í land-
inu undanfarið og hafa yfir 100
manns látist í slíkum árásum á
síðustu tveimur vikum.
Einn helsti andstæðingur
talibana úr röðum klerka, Sar-
fraz Naeemi, lét lífið í annarri
árásinni, sem virðist hafa verið
beint að honum. Honum hafði
margsinnis verið hótað lífláti
eftir að hann sagði sjálfsmorðs-
árásir ekki samræmast íslam. - þeb
Sjálfsmorðsárásir í Pakistan:
Yfir 100 látnir á
tveimur vikum
EFNAHAGSMÁL „Við höfum hagað
okkar málum á sama hátt og við
höfum alltaf gert,“ segir Ólafur
Teitur Guðnason, framkvæmda-
stjóri samskiptasviðs Alcan á
Íslandi. Í forsíðufrétt Fréttablaðs-
ins í gær kom fram að Fjármála-
eftirlitið (FME) ætli að rannsaka
álfyrirtækin sérstaklega til að
kanna hvort þau hafi á einhvern
hátt brotið lög um gjaldeyrisvið-
skipti. Ólafur neitar því alfarið að
Alcan hafi á einhvern hátt farið
framhjá þeim gjaldeyrishöftum
sem sett voru í vetur.
Hann segir einnig að Alcan hafi
fengið staðfestingu frá Seðlabanka
Íslands í janúar síðastliðinn um að
þeirra viðskipti séu eftir settum
reglum.
Ágúst Hafberg, framkvæmda-
stjóri samskipta hjá Norðuráli,
tekur í sama streng. Hann segir
fyrirtækið hafa haldið sig í sama
farvegi og engin stórbreyting hafi
orðið á þeirra viðskiptaháttum.
Ágúst segir einnig að fulltrúar
Norðuráls hafi fundað með Seðla-
bankanum rétt fyrir áramót þar
sem þeir hafi fengið leiðbeining-
ar um hvernig þeir eigi að haga
sínum gjaldeyrisviðskiptum.
Hvorki Ágúst né Ólafur hafa
heyrt um fyrirhugaða rannsókn
FME. Þess ber að geta að öll álfyr-
irtæki á Íslandi eru undanþegin
nýlegum reglum um gjaldeyris-
viðskipti. - bþa
Samskiptafulltrúar Norðuráls og Alcan kannast ekki við fyrirhugaða rannsókn:
Fara eftir settum reglum
ÁLFRAMLEIÐSLA FME stefnir að rann-
sókn um gjaldeyrisviðskipti álfyrirtækja
hérlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEISTU SVARIÐ?