Fréttablaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 13. júní 2009
SJÁVARÚTVEGUR Áhöfnin á Vest-
mannaey VE fékk stóran hákarl
í botnvörpuna á miðvikudags-
morgun. „Ætli hann sé ekki um
átta til tíu metrar á lengd,“ segir
Magnús Berg Magnússon háseti.
„Hann var sprelllifandi svo ég
nýtti tækifærið og tók aðeins á
honum, svona til að geta sagt að
ég hefði barist við lifandi hákarl,“
segir hásetinn og hlær við. „Ann-
ars virðist þetta vera hið ljúfasta
grey þótt stór sé.“ Magnús Berg
hefur stundað sjóinn á sumrin til
margra ára.
„Ég hef þó aldrei orðið vitni
að því að hákarl kæmi um borð,
nema þá þessi venjulegi í brúnni.
Það er að segja, stýrimaðurinn
á skipinu heitir Héðinn Karl og
gengur undir nafninu Hákarl.“
Nokkrar tegundir hákarla finn-
ast í íslenskri lögsögu og geta
þeir lengstu orðið fimmtán metr-
ar að lengd. - jse
Vestmannaey VE fékk hákarl í botnvörpuna:
Tók á sprelllifandi
en ljúfum hákarli
HÁKARL HISSA Á HÁKARLINUM Héðinn
Karl Magnússon, oftast kallaður Hákarl,
klórar sér í hausnum yfir þessu ferlíki en
Daníel háseti fylgist með.
MYND/MAGNÚS BERG MAGNÚSSON
LÖGGÆSLA Lionsklúbburinn Eir
hefur fært fíkniefnadeild lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
500 þúsund krónur að gjöf. Pen-
ingunum verður varið til kaupa á
tækjum og búnaði fyrir deildina
og hefur hluta þeirra þegar verið
ráðstafað.
Að sögn Friðriks Smára Björg-
vinssonar, yfirlögregluþjóns hjá
LRH, verður þessari rausnar-
legu gjöf meðal annars varið til
kaupa á tækjum til að auðvelda
fíkniefnaleit, svo og myndavéla-
búnaði.
Lionsklúbburinn Eir hefur á
undanförnum árum styrkt bar-
áttu fíkniefnadeildarinnar gegn
fíkniefnum svo um munar. - jss
Fíkniefnadeild lögreglunnar fékk góða gjöf:
Hálf milljón til tækjakaupa
AFHENDING Frá afhendingu gjafarinnar,
frá vinstri Karl Steinar Valsson, yfirmaður
fíkniefnadeildar, Guðríður Hafsteinsdótt-
ir, Guðleif Bender, Jón H.B. Snorrason
aðstoðarlögreglustjóri, Guðný Kristjáns-
dóttir, Ásta Bára Jónsdóttir og Friðrik
Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn.