Samvinnan - 01.01.1949, Blaðsíða 3
„Vár
Gárd“
Skóli og námsheimili
sænska samvinnusam-
bandsins.
Eftir Baldvin Þ. Kristjánsson
Á baöstriind i Saltsjöbaden■
-f HARTNÆR aldarfjórðung hefur
Vár gárd — „bærinn okkar“ —
fræðslustofnun Kooperativa Förbun-
dets (K. F.) — stráð frækornum sam-
vinnuhugsjóna og verklegrar kunnáttu
í huga þúsunda karla og kvenna. Þar
eru Svíar sjálfir auðvitað fjölmennasti
hópurinn, en fleiri hafa þó notið góðs
af; útlendingar frá mörgum löndum
jarðar, þ. á. m. nokkrir frá íslandi.
Það er því engan veginn að ófyrir-
synju, að þessar sérstæðu samvinnu-
menningarsofnunar sé að nokkru
getið í málgagni íslenzkra samvinnu-
manna — ekki sízt með það fyrir aug-
um, að beina athygli ungra og áhuga-
samra manna að Vár gárd, sérstaklega
meðan aðstæður hér heima leyfa ekki
hliðstæða fræðslumiðlun.
Saltsjöbaden
Um það bil 15 km. í suð-austur frá
Stokkhólmi er merkilegur bær, sem
heitir Saltsjöbaden. Þótt hér sé um
smábæ að ræða — líklega svipaðan
Akureyri — er hann þó þekktari víða
um lönd heldur en margir þeir aðrir,
sem af meiri fólksfjölda hafa að státa.
Ber þar margt til. Hvort tveggja er, að
náttúran sjálf hefur veitt Saltsjöbaden
ríkulega af náðargjöfum sínum, enda
hafa líka íbúarnir ekki vanrækt sitt
hlutskipti í samspilinu, sem manns-
ins er.
Bæjarstæðið er á hálfeyjum, sem
skaga út í Baggensfjörðinn, og byggð-
in er utan í og á milli skógivaxinna
hæða. Úti fyrir liggur svo Skerjagarð-
urinn með sínum dásamlegu eyjum,
sem standa vörð um ströndina. Má
segja, að staðurinn sé svo vel í sjó
frekar en í sveit settur, að vart verði
á betra kosið. Það er líka oft sagt, að
dýrmætustu auðæfi Saltsjöbadens sé
hinn svalandi og tæri sjór, sem um-
lykur næstum alla vega, enda snýst
lífið þarna að miklu leyti kringum
aðstöðuna, sem lega kaupstaðarins
skapar.
Þúsundir manna víða um heim
sækja sér árlega hvíld, hressingu og
heilsubót í heilnæmi lofts og lagar
Saltsjöbadens, sem fyrir löngu er orð-
inn einn þekktasti og vinsælasti bað-
staður Norðurlanda.
Frægasta hótelið er Grand Hotel
Saltsjöbaden, ekki sízt fyrir það, að á
síðari árum er það orðin hefðbundin
venja að halda þar meirháttar ráð-
stefnur, bæði norrænar og jafnvel al-
þjóðlegar. Síðasti fundurinn, sem ég
man eftir að sagt hefur verið frá, var
samkoma fulltrúa skandinavisku land-
anna til þess að ræða sameiginlegar
hervarnir. Til gamans má geta þess,
að Helgi P. Briem bjó á Grand Hotel
með fjölskyldu sína alllengi eftir
komuna til Svíþjóðar sem sendifull-
trúi þjóðar sinnar.
Nokkrar mjög frægar byggingar
prýða Saltsjöbaden. Ber þar fyrst að
nefna hina rómuðu Opinberunar-
kirkju, sem er mjög einstæð að fegurð
og glæsileik, hvar sem á er litið, enda
verk frægra listamanna, svo sem eins
fremsta myndhöggvara Svía, Carl
Milles, sem prýddi hana háskomum
altarismyndum úr lífi Krists. Þessi
mikla kirkja var vígð 1913 og gefin
söfnuðinum af fjármálamanninum
mikla K. A. Wallenberg, sem m. a.
var utanríkisráðherra Svía flest ár
fyrri heimsstyrjaldar, og ættaður úr
nágrenninu.
Þá má nefna stjörnurannsóknabygg-
inguna, er ber við himin á hæð nokk-
urri, sem kennd er við hana, Observa-
torieberget. Stockholms Observatori-
um hefur vakið athygli vísindamanna
víða um heim og er talið ein bezta
vísindastofnun sinnar tegundar.
Þótt fátt eitt sé nú talið af dásemd-
um Saltsjöbadens, ætla eg að það gefi
ókunnugum nokkuð til kynna um
það, að þeir samvinnumenn Svía, sem
ákváðu skólastofuninni samastað, hafi
ekki valið af verri endanum, þegar
Saltasjöbaden hlaut útnefningu sem
heimkynni Vár gárds.
Vár gárd
Bysslnsar °- fL
Skólaheimilið er á tveim nærliggj-
andi stöðum á sömu hæð norðan aðal-
götu og járnbrautar í Saltsjöbaden;
3—5 mínútna gangur á milli, eftir því,
hvorum megin hæðarinnar er gengið.
Þarna er mjög fagurt, einkum á vor-
um og sumrum.
Árið 1924 keypti Kooperativa För-
bundet eldri hlutann, Vatnsnesið
3