Samvinnan - 01.01.1949, Page 4
„Frá yztu nesjum."
('Sjöudden), af stórkaupmanni nokkr-
um. Fylgdu landareigninni nokkrar
stórar og sérkennilegar byggingar í
gömlum stíl. Merkustu húsin þar
heita „Biskupan“ og „Kontorsvillan".
Þar byrjaði skólastarfsemi Vár gárd á
miðju ári 1925 — fyrsta námskeiðið
haldið vikuna 6.—11. júní það ár. Enn-
þá fer aðalkennslan fram á Vatnsnesi.
Þar eru kennslustofur í nefndum hús-
um, ennfremur æfingabúð, skrifstofa
skólans, kennarastofur, rannsóknar-
stofa, vörusýningarherbergi, íbúðir
fyrir 30 nemendur o. fl. Litlu neðar
er íbúðarhús skólastjóra og nokkurra
annarra, sem við skólann vinna.
Arið 1930 keypti svo sænska sam-
bandið hinn hlutann, Skártofta. Einn-
ig honum fylgdu mörg vegleg hús, þ.
á. m. tilkomumesta bygging skólans,
og er hún samnefnd staðnum. Er raun-
ar hér um glœsilega höll að ræða, sem
vekur hrifningu allra, er augum líta.
Húsið er byggt 1897, af sænskum
kapteini, og verður ekki sagt með
sanni, að þar hafi neitt verið skorið
við neglur, er mátti verða til styrktar
og prýði. Um það ber allt vott enn í
dag.
í Skártofta eru vistarverur fyrir
fjölda nemenda, suma kennara, starfs-
fólk í eldhúsi o. fl. Þar eru og myndar-
leg salarkynni á báðum aðalhæðum,
sem notuð eru fyrir setustofur íbú-
anna. Þar er og lestrarstofa, að
ógleymdum sérstökum hátíðasal, þar
sem allar meiriháttar samkomur skól-
ans o. fl. eru haldnar. Er engin ný-
bóla, að þangað sé komið með virðu-
lega gesti K. F., bæði útlenda og inn-
lenda.
Arið 1934 var reist stór, nýtízku
bygging áföst við Skártofta. Mestur
hluti hennar er matsalur skólans. Þar
geta á annað hundrað manns neytt
matar samtímis, með góðu móti, enda
engin nýjung að svo sé. Er vissulega
ekki heiglum lient að vera matmóðir
á Vár gárd. Þeim starfa hefur þó gegnt
samfleytt á þriðja tug ára sama kon-
an. Strax og ég sá „husrnor1 — en sá
er liinn sænski titill hennar, — fannst
mér mikið til manneskjunnar koma,
og hún minna jafnvel frekar á kon-
ung en drottningu. Starf hennar hef-
ur verið þýðingarmikið fyrir Vár gárd,
og innt af höndum með miklum
myndarskap.
Skammt frá stórhýsinu Skártofta er
annað minna. Það heitir Lilltofta, og
er aðallega bústaður kennara. Fleiri,
minni hús eru og þarna í ýmissi notk-
un fyrir skólahaldið. Mun tala allra
húsa Vár gárds vera nokkuð á annan
tug, en ekki veit eg það nákvæmlega.
Eitt þeirra er ein elzta kaupfélagsbúð
Svía — frá Köping. Hún var keypt af
K. F., og er varðveitt m. a. til minn-
ingar um Martin Sundell, einn glæsi-
legasta frumherja sænskrar samvinnu-
Iireyfingar. í æsku starfaði hann sem
gjaldkeri ;í þessu litla en sögulega húsi.
Aður en eg skilst við þetta spjall
mitt um ytri umgerð þessa sam-
vinnuskóla, vil eg geta þess, að norður
af Skártofta Hggur lítil eyja, að mestu
samfelld klöpp, en þó skógi vaxin. Var
lnin í einstaklings eign þar til fyrir
nokkrum árum, að K. F. keypti hana
einnig — og lét sig ekki muna að
greiða fyrir hana drjúgan skilding til
þess að forða námsgestum á Vár gárd
frá „óhollum félagsskap", eins og eg
heyrði sagt — en margir „stórlaxar“
voru um boðið.
A ðdragandi.
Þegar árið 1918 var Námsdeild K. F.
stolnuð. Forstöðumaður hennar frá
upphafi er sami maðurinn, sem stofn-
aði Vár gárd og veitir stofnuninni for-
stöðu enn í dag, Harald Elldin, rektor.
Hann hefur alla tíð verið lífið 02; sálin
í þessum þætti starfs sambandsins og
mótað það manna mest. Meðal annars,
sem námsdeildin fékkst við, var nám-
skeiðahald í samvinnufræðum, hér og
þar, eftir því, sem ástæður leyfðu.
Þannig gekk, þar til Vár gárd tók til
starfa, svo sem áður er sagt. — Það var
hvorki áhuga- né reynslulaus maður,
sem varð skólastjóri fyrstu menntunar-
stofnunar slíkrar tegundar, sem Vár
gárd er.
Nokkur einkenni.
Fræðslufyrirkomulag á Vár gárd er
talsvert annað en algengast er á svo-
Opinberunarkirkjan.
4