Samvinnan - 01.01.1949, Qupperneq 8
einn Vár gárds-nemanda við skóla
sinn, má nefna það, að í málgagni
Námsdeildarinnar. „Vár tidning“,
birtist að jafnaði skrá yfir tilfærslu
nemendanna milli starfs og staða. Er
það fróðlegur lestur nemendahópnum
í heild, og vitað fyrir víst, að margir
leita þessa fesefnis jafnan fyrst, af mik-
illi áfergju. Hefur þetta m. a. áreiðan-
lega heilbrigð og hvetjandi áhrif á
viðkomandi einstaklinga um að standa
sig sem bezt. Tímaritið er skemmti-
legur vettvangur fyrir umræður skóla-
stjóra, kennara, nemenda o. fl. um
samvinnufræðslustarfið í heild, mark-
mið þess og leiðir, og alveg sérstak-
lega — auðvitað —• í sambandi við Vár
gárd, enda sjáið þið samrœmið í nafn-
giftinni, en mynduð þó lieyra enn bet-
ur, ef rétt er sagt! Áherzlan (með til-
finningu!) á að vera „vár“, segir
Elldin rektor!
Ómæld mun vera sú lijálp og leið-
beining, sem Vár gárd hefur veitt
mörgum nemendum sínum eftir að
skólavist lauk. Og vel mun það verka
á margt ungmennið, að vita að yfir
því er vakað á kærkominn hátt, af
velvilja, hjálpsemi og skilningi.
Mörg námskeið.
Frá upphafi lxefur það tíðkast á Vár
gárd, að tölusetja eftir tegund öll
helztu námskeið, er þar liafa verið
haldin. í almanaki skólans fyxir 101 <S
er sýnt m. a., að fyrir síðustu áranrót
átti að vera lokið 85. námskeiðinu fyr-
ir ah'reiðslufólk — 24. frarnhaldsnam-
O
skeiðinu fyrir þá, er sótt hafa fyrri
námskeið í ýmsum efnurn — 104.
stjórnarvikunni — 26. fulltrúaráðsvik-
unni — 25. námshringastjóravikunni
— 25. vikunni fyrir starfsmenn kjöt-
búða — 10. endui'skoðendavikunni —
10. deildarstjóravikunni — 10. skrif-
stofumannavikunni — 9. iðnaðarvik-
unni o. s. frv. Það ber að athuga í
þessu sambandi, að sundurgreining
námskeiðanna hefur orðið æ meiri og
rneiri, er tímar liðu, svo lægri tölurn-
ar gefa ekki rétta hugmynd um
fræðslu í viðkomandi fagi, sem áður
hefur þá verið tekið með öðrum náms-
greinum.
Framanskráð upptalning nær þó
aðeins skammt til þess að sýna fjöl-
breytileik verkefna Vár gárds. Þar
hafa verið haldin fjórtán námskeið
fyrir lýðháskólanemendur — 12 al-
menn æskulýðsnámskeið — námskeð
fyrir verkstjóra, húsmæður, veitinga-
fólk, iþróttakennara o. fl. o. fl., sem
of langt mál yrði upp að telja. Þá
munu og ótalin vera öll þau mót og
samkundur, sem árlega njóta velvilj-
aðrar fyrirgreiðslu skólans og starfs-
liðs lians, því æ fastar og fastar er sótt
á um þetta af ýmsum aðilum vegna
þess, að raunar er hvergi í slíkt liús
að venda með tilliti til næstunr alls,
er nreð þarf á slíkum mannamótum
til menningarauka viðkomandi fólki.
Mjög algengt er, að skotist sé út á
\7ár gárd um helgar t. d. á laugar-
dögum, og ýmis konar félagsráðstefn-
ur haldnar franr á sunnudagskvöld.
Þykir slíkt jafnari hin ákjósanlegasta
hressing, liæði andlega og líkamlega.
Heyrði ég um það marga vitnisburði
þann tíma, sem ég var á Vár gárd.
Hverjr lialda „lieim að Hólum“?
Eftir þessa athugun á námsgrein-
um, er ekki ófróðlegt að liuga lítil-
lega að því, liver aðsókn Iiefur verið
að Vár gárd, og livers konar fólk hefur
lagt leið sína þangað.
I frásögn af Vár gárd í ársskýrslu
K. F. 1947, er það upplýst, að á því
ári liafi samtals 1185 sótt námskeið
skólans. Þar af voru 803 starfsmenn
kaupfélaga, 114 unnu lijá samvinnu-
sambandinu, 150 voru stjórnendur,
fulltrúaráðsmenn, endurskoðendur og
aðrir trúnaðarmenn samtakanna, en
hinir 118 ýmsir aðrir Svíar og útlend-
ingar.
Sama heimild greinir frá því, að á
þeim 23 árum, sem skólinn hafði þá
starfað, hafi samtals 22.534 sótt þau
námskeið, er staðið liafa lieila viku
eða lengur. Aðalskipting þessa hóps
er þannig:
5.198 sóttu námsk. fyrir afgreiðslufólk
2.080 — — — deildarstjóra
1.024 — — — kaupfélagsstjóra
6.200 — — — aðra starfsmenn
2.467 — — — stjórnarnefndamenn
3.219 — — — aðra trúnaðarmenn
2.340 — önnur námskeið
22.534 samtals, eða næstum 1 þús. að meðal-
tali á ári.
Til þess að Iiressa upp á nýráðið
fólk hjá kaupfélögunum — yfirleitt
ungt, sem lítið eða ekkert veit um sam-
vinnusamtök — voru lialdin fyrir það
nokkurs konar skyndi- eða hraðnám-
skeið í samvinnufræði; samtals 25
kenslustundir. Sýnir þetta m. a., að
forsvarsmenn sænskra samvinnusam-
taka kæra sig ekki um starfsmenn, er
ekki bera neitt skynbragð á anda og
starfsaðferðir samvinnuhreyfingarinn-
ar, jafnvel þótt þeir séu sæmilega
starfshæfir frá venjulegu, almennu
sjónarmiði-
Að undanförnu liefur það tíðkazt,
að lialda sérstakan „Vár gárds-dag"
fyrir skrifstofufólk og verksmiðju-
starfsmenn K. F. Kemur það þá sam-
an í „kamrat“-legum anda og ræðir
ástand og horfur í málefnum samtak-
anna, og hlustar á aðra tala um slíkt
hið sama. Fyrir árslok 1947 rann upp
52. dagurinn í röðinni fyrir þeim
félögum.
Þá má minna á vikulokanámskeið-
in, sem haldin liafa verið á Vár gárd
fyrir ý.msa klúbba og félög utan sam-
vinnusamtakanna. Margur félagsskap-
urinn sér fram á þýðingu samvinn-
unnar í lífi einstaklinga og þjóða, og
vill því njóta uppfræðslu um þessa
merkilegu mannfélagshreyfingu.
„Af slað burt i fjarlœgð.“
Ekki einskorðar Vár gárd sig við
heimahagana í Saltsjöbaden, livorki
livað náni nemendanna eða kennslu
kennarana snertir. Ilvað liinu síðara
viðkemur, má geta þess, að gerðir eru
út smá-leiðangrar um landið, aðalleg.i
að sumrinu, bæði til námskeiðahalda
hér og þar, og eins til leiðbeiningar
og hjálpar kaupfélögum um rekstur
búða og fræðslu meðlima.
Arlega fara samtals upp undir 100
vikur í slíkar „útilegur" kennsluliðs-
ins, og eru þær taldar liafa liina ákjós-
anlegustu þýðingu fyrir félögin sjálf
og félagsfólk þeiiTa.
Þá er að víkja að „útstáelsi" nem-
enda. Það er mjög algengt, að skipu-
lagðar séu námsferðir, svo og svo marg-
ar, í sambandi við námskeiðin. Er þá
farið til að sjá og kynnast merkuni
fyrirtækjum, einkum þeim, sem rekin
eru á vegum samvinnusamtakanna.
Má þar nefna t. d. Lumaverksmiðj-
una og postulíns- og leirkeraverksmiðj-
una að Gustafsberg, sem báðar eru
heimskunn fyrirtæki.
Eg get ekki stillt mig uni að geta
þess hér, að stór fara þau nú að ger-
8