Samvinnan - 01.01.1949, Page 23
Á förnum vegi
AÁRUNUM síðustu fyrir heimsstyrjöldina,
var hafinn hér á íslandi vísir að manneldis-
rannsóknum. Manneldisvísindi voru þá mjög á
dagskrá meðal menningarþjóða sem liður í
:sókninni að auknu heilbrigði og meiri menningu.
Bætt samgöngutækni, aukinn hraði, nýjar upp-
finningar og miklar breytingar með þjóðunum,
höfðu á skömmu árabili gjörbreytt mataræði
þjóðanna. Hver mundu áhrif þeirra á þjóðar-
Jieilsuna og þjóðarmenninguna? Augljóslega var
mikilvægt að fá svar við þeim spurningum. Þessi
nauðsyn var rík hér á landi. Þjóðin hafði á
jrokkrum áratugum gengið í gegnum breytinga-
■tíð, sem aðrar þjóðir höfðu verið aldir að feta.
Islendingar hlupu yfir heil tímabil í tækniþró-
unarsögu annarra þjóða. Þeir lögðu t. d. aldrei
járnbrautir, en tóku hin nýrri samgöngutæki, bif-
reiðina og flugvélina, í þjónustu sína. í mann-
■eldismálum varð breytingin ör og stórstíg. Aukin
skipti við önnur lönd höfðu í för með sér nýjar
fæðutegundir. íslenzki maturinn, fæða þjóðar-
innar í margar aldir, gerðist sjaldgæfari, en inn-
flutningur erlendra matvæla jókst. Landsmenn
rsjálfir tóku að meðhöndla innlend matvæli á
nýjan hátt. Innlendur matvælaiðnaður hófst hér
á landi. Hver mundu áhrif þessa alls á heilbrigði
■og hamingju þjóðarinnar? Augljóslega var það
mikilsvert, að vita svar við þeirri spurningu.
Það var því vafalaust réttmætt, er ríkisstjórnin
beitti sér fyrir því. 'illlöngu fyrir styrjöldina, að
hefja vísindalegai rannsóknir á þessu sviði. Dr.
Skiili Guðjónsson, hinn kunni manneldisfræðing-
ur, skipulagði rannsóknirnar, en dr. Júlíus Sigur-
jónsson sá um framkvæmd þeirra og birti ýtar-
ii.ga ritger j um þær fyrir nokkrum árum. Þessar
rannsóknir munu hafa leitt ýmislegt markvert í
ljós, en þeim var hætt á stríðsárunum, og telja
sérfræðingar þær hafa staðið of stutt til þess að
hægt sé að byggja á þeim.
SÍÐAN þetta var, liefur íslenzka þjóðin enn
gengið í gegnum miklar og stórstígar breyt-
ingar. Hernám Iandsins, aukin samskipti við
Bandaríkin, aukin fjárráð og ný tækni hafa
gjörbreytt mörgu, þar á meðal veigamiklum
atriðum í manneldismálunum. íslenzki maturinn
hefur enn þokazt í skuggann, en erlendar fæðu-
tegundir gert sig heimakomnari á matborðum
heimilanna. En cngin vísindaleg rannsókn hefur
farið fram á því, hvert þar með er stefnt í heil-
brigðismálum, og hversu hollustuháttum þjóðar-
innar er nú háttað. Starfið, sem féll niður í
stríðsbyrjun, hefur ekki verið tekið upp aftur.
Hins vegar hefur ekki skort umræður um matar-
æði og hollustu. En þær umræður hafa frekar
svarið sig í ætt við ágizkanir en vísindi, og þykir
kenna þar ofstækis og kreddutrúarbragða á
stundum.
SAMVINNAN hefur nú lokið birtingu þriggja
merkilegra erinda dr. Skúla V. Guðjónssonar
prófessors um manneldismál íslendinga, eins og
þau komu honum fyrir sjónir. Mjög merkilegar
ábendingar er að finna í þessum greinum próf-
cssorsins, enda liafa þær vakið almenna athygli.
Ábendingar hans virðast benda eindregið í þá
átt, að nauðsyn sé að hefja vísindalegar mann-
eldisrannsóknir hér og vinna að breyttu matar-
æði á þeim grundvelli. Við íslendingar eigum,
þai sem dr. Skúli er, einn hinn lærðasta mann á
þessu sviði, sem nú er uppi í Evrópu. En satrfs-
kraftar hans koma þjóð hans ekki að gagni. Hann
starfar sem mikilsvirtur ráðunautur í manneldis-
málum hjá erlendri þjóð. Þekking hans og aug-
ljós nauðsyn rannsókna hér ætti að verða ís-
lenzku þjóðinni og stjórnarvöldum hennar hvöt
til þess að vinna að því, að hann yrði fenginn
til þess að hverfa heim og leiðbeina hér. Við
höfum lög um heilsugæzlu, sem að vísu hafa
ekki enn verið framkvæmd. Ef til vill væri stórt
spor stigið til raunverulegrar heilsugæzlu — eigi
þýðingarminna en framkvæmd laga þessara —
með aukinni þekkingu á manneldismálum þjóð-
arinnar, meðal almennings, i skólum (t. d. hús-
mæðraskólum), innflutningsyfirvalda og kaup-
sýslumanna. Þjóðin hefur vel ráð á því að hefja
slíka fræðslu. Margir munu telja, að hún hafi
ekki ráð á að fresta því of lengi.
í STUTTU MÁLI
(Framhald af bls. 2.)
til þess að flytja erindi um helztu félagsmála-
hreyfingar o. fl. — og gera síðan ráð fyrir
almennum framhandsumræðum á eftir í
formi fyrirspurna eða með öðru móti.
Finnbogi Júliusson,
form. fulltrúaráðs iðnnemafélaganna.
Fyrstu tvö erindin á þessum vetri hafa nú
þegar verið haldin. Fjölluðu þau bæði um
samvinnuhreyfinguna. Það fyrra flutti Vil-
hjálmur Árnason, forstöðumaður Fræðslu-
deildar Sambandsins, 5. jan. s. I. í Félags-
heimili V. R., og talaði um verzlunarhætti
fyrir daga kaupfélaganna, upphaf samvinnu-
samtakanna í Englandi og þróun þeirra hér
á landi. Baldvin Þ. Kristjánsson, erindreki
SÍS, flutti siðara erindið 12. jan. á sama
stað, og nefndi: „íslenzk samvinnuhreyfing
í dag“. Lýsti hann áhrifum og aðstöðu sam-
vinnusamtakanna í þjóðlífinu, þáttöku lands-
manna í þeim, og drap á helztu nýjungar í
félagsmálum þeirra og framkvæmdum á síð-
ustu árum.
Bæði þessi erindi munu verða birt í næsta
tbl. „Iðnnemans", málgagns Iðnnemasam-
bands íslands, ásamt nokkrum myndum.
Á næstunni mun Sverrir Kristjánsson,
sagnfræðingur, flytja tvö erindi um verk-
lýðshreyfinguna — og fleiri munu á eftir
fara.
Það er mjög ánægjulegur áhugi, sem lýsir
sér í þessu fræðslustarfsemi fulltrúaráðs iðn-
nemafélaganna; áhugi, sem mörg önnur fé-
lagssamtök mættu taka sér til fyrirmyndar.
Sannleikurinn er sá, að alltof lítið er að því
gert að kynna sér uppbyggingu og starf
þeirra félagshreyfinga, sem hafa svo víðtæk
áhrif, þau grípa inn í líf flestra þjóðfélags-
þegnanna, ýmist beint eða óbeint.
Formaður fulltrúaráðs iðnnemafélaganna
cr Finnbogi Júlíusson, blikksmíðanemi,
Reykjavík.
Erindreki SÍS,
Baldvin Þ. Iíristjánsson, ferðaðist víða um
landið á s. 1. ári og hélt fundi með samvinnu-
mönnum. Samkvæmt skýrslu erindrekans til
Sambandsins, hefur hann mætt á 90 fundum,
og hafa 9100 manns hlýtt á erindi hans og seð
lræðslukvikmyndir, sem sýndar hafa verið
á fundunum. Iívikmyndirnar voru flestar
sænskar, frá samvinnusambandi Svía, K. F.
Stœrsta samvinnubygging Sviþjóðar,
Hyregásternas Sparkasse- och Byggnadsför-
ening — HSB —, var 25 ára á s. 1. ári. Á þess-
um árum liefur félagið látið byggja um 14.000
íbúðir. Alls hafa byggingar á vegum félagsios
kostað um 200 milljónir sv. kr. Þegar athugað
er, hvað íbúðir kosta hjá prívat-byggingafyrir-
tækjum á þessu tímabili, kemur í ljós, að
þeir, sem hafa leyst húsnæðismál sín með
hjálp HSB, hafa sparað um 30 millj. sv. kr.
Forseti Alþjóðasambands samvinnumanna,
Mr. T. H. Gill, hefur tekið sæti í nefnd
jjeirri, sem brezka ríkisstjórnin skipaði nú
eftir áramótin til þess að undirbúa stofn-
un Evrópuráðs og aukna samvinnu Evrópu-
þjóða
Handbók fyrir búðarfólk
nefnist ný bók, sem Norðri gefur út. Eins
og nafnið ber með sér, er hún ætluð af-
greiðslufólki. Gísli Guðmundsson fyrrv. rit-
stjóri og Þorvarður Árnason deildarstjóri
hafa tekið bókina saman og einkum stuðst
við handbækur sænskra og norskra samvinnu-
manna. Bók þessa ætti allt verzlunarfólk að
lesa.
AUGLÝSINGATÆKNI
(Framhald af bls. 22)
tæki óeðlilega miklu fé í auglýsinga-
starfsemi En á stríðsárunum er mjög
margar vörutegundir voru ófáanlegar,
héldu framleiðslufyrirtækin samt
áfram að auglýsa, til þess að minna á
vörumerkin og stuðla að því, að fram-
leiðsla þeirra gleymdist almenningi
ekki. Þetta viðhorf er athyglisvert og
mun hollt að taka hófsamlegt tillit til
þess.
23