Samvinnan - 01.02.1949, Qupperneq 3
Sameiginleg skrifstofa Samvinnutrygginga og fjármdladeildar SÍS er rúmgóö og björt.
SW «i*»:
K mmmm STZ: ' :|
Sambandshúsið í Reykjavík
í eldri og nýrri mynd
Fyrir nokkru er lokið miklum endurbótum á húsakynnum Sambands ísl. samvinnufélaga í Reykjavík. f þessari grein er hin-
um nýju húsakynnum lýst með orðum og myndum.
FÁIR MUNU ÞEIR fullorðnir ís-
lendingar vera, sem ekki kannast
við Sambandshúsið við Sölvhól, annað
hvort af eigin sjón eða annarra sögn.
Svo mjög hefur það lengst af vakið at-
hygli. Sumir muna Sanrbandshúsið
vegna ytri glæsileiks og þokka, senr
tákn nýs tíma í byggingaviðhorfi
landsnranna — enda frægt af saman-
burðarmynd, sem hér unr árið barst
um allt land, og sýndi það ásanrt litla,
gamla Sölvhólsbænum undir yfirskrift-
inni: „Gamalt og nýtt“. — Öðrum er
Sambandslrúsið minnisstæðast og kær-
ast sem heimkynni sambands sam-
vinnufélaganna; samtaka, ermeðýmsu
nróti orka á líf og líðan alls þorra
landsmanna. E. t. v. hefur þó þetta
tvennt runnið saman í skynjun og við-
horfi flestra, og orsakað það, að Sam-
bandshúsið hefur jafnan öðrum þræði
verið sveipað hugþekkum ævintýra-
ljóma, og alveg vafalaust í ríkari mæli
en títt er um ekki eldri byggingar. Og
eg veit, að jreir eru ekki svo fáir, sem
hefðu verið nógu ,,ópraktiskir“ til þess
að óska þess, að Sambandshúsið, sem
þeir hafa undanfarna áratugi geyrnt
mynd af í huga og jafnvel hjarta, liefði
mátt varðveitast ósnortið í uppruna-
legri mynd um aldur og ævi. En öðr-
um mun svo líka finnast „rómantíkin"
vera nokkuð langt gengin með þess
háttar hugsunarhætti, og hafa nútíma-
legri sjónarmið. Sjálfum finnst mér
báðir hafa nokkuð til síns máls —
meira að segja mikið.
Og nú er öldin önnur, þótt hún sé
hin sama, fyrir verustað heildarsam-
taka samvinnumanna! Nú er svo kom-
ið, að lengur gengur alls ekki að tala
um „Sambandshúsið" á sama hátt og
áður. Undanfarin 2—3 ár hafa orðið
svo stórkostlegar breytingar og mikil
stækkun á húsakosti SÍS, að þeir, sem
aðeins sjá í anda það sem var, hafa
mjög ófullkomna og villandi hugmynd
af því senr er.
GAMLA GÓÐA Sambandshúsið
þótti mikil bygging á sinni tíð, og
var það. Alllengi framanaf leigði SÍS
öðrum mikinn hluta hússins. Þar kom
þó, vegna sívaxandi starfsemi Sam-
bandsins sjálfs, og síðar verzlunarvið-
skipta, sem því voru um nokkurt skeið
falin af hálfu hins opinbera (áburðar-
og grænmetissölu), að ekki veitti af
öllu húsinu til eigin nota, og hrökk þó
eigi til.
Þegar í ársbyrjun 1946, voru
þrengsli orðin svo mikil, að mjög baga-
legt var. Og hvernig ástandið hefur
verið síðar á árinu, þegar starfsmenn
nýrra deilda og fyrirtækja, eins og t. d.
Samvinnutrygginganna, tókn að bæt-
3