Samvinnan - 01.03.1949, Page 3
PETER FREUCHEN
— hinn kunni danski land-
könnuður — segir hér frá
Grænlandi og þeirri breyt-
ingatíð, sem nú er þar upp-
runnin. — Þetta er fyrsta
greinin af þremur um
þetta efni, og munu hinar
tvær birtast í næstu heft-
um. Greinaflokkurinn er
birtur hér með leyfi höf-
undarins, sem segir í bréfi
til Samvinnunnar, að það
sé sér ánægja og heiður,
að íslendingar lesi þessa
frásögn hans.
FLESTIR verða fyrir vonbrigðum,
er maður kemur heim frá Græn-
landi og hefur ekki frá neinum glæfra-
legum ævintýrunr að segja. Menn vilja
gjarnan lrugsa sér Grænlendinga sem
villimenn, er ala aldur sinn í snjóhús-
um, gjarnan með lýsisbolla í annarri
hendinni en selspik í hinni. Eitthvað
á þessa leið var hin klassíska lýsing á
Grænlendingum, sem eg lærði í skóla,
og framfarir eru fyrirbrigði, sem
menn gjarna vilja eiga sjálfir, án þess
þó að þær trufli þær hugmyndir, sem
menn hafa skapað sér um lífið á öðr-
um stöðum.
Það er útbreidd trú, að þær þjóðir,
sem lifa í skauti náttúrunnar, séu ein-
feldningar, og menn hafa það til
marks, að hafa heimsótt þær fyrir ára-
tugum og þá uppgötvað, að menn
voru fusir td þess að lata af hendi Þetta er btcrinn Umdnek. Þar er m. a. barnaspitali, scm Danir kosta.
NÝIR TÍMAR A GRÆNLANDI
verðmætar vörur fyrir eina saumnál
eða lítilsvert glingur, en tímarnir hafa
breytzt, og með árunum hefur þetta
fólk lært að meta, hvers virði hlut-
irnir eru, og smám saman áttað sig á
markaðsverði og gengisbreytingum.
Það má líka segja, að skemmtiferða-
menn séu einfeldningar, en það var
ekki ætlunin að skrifa um þá hér. Eg
ætla að ræða um Grænland í dag.
Eg var staddur í Godthaab, sem er
höfuðstaður hinnar dönsku nýlendu,
og skrifaði frásögn um fund lands-
ráðsins í sumar, er leið. Danski for-
sætisráðherrann, Hans Hedtoft, var á
þeim fundi, og liann talaði algjörlega
nýtt tungumál við samkunduna. Hin-
ir 25 meðlimir landsráðsins hlustuðu,
ræddu málið innbyrðis og gengu síð-
an frá svari sínu, sem skyldi lagt fyrir
þing og konung í Kaupmannahöfn.
Þarna var fólk, sem ekki stendur
að baki skandinavískum stjórnmála-
mönnum í samningalist, og það veit
örugglega, livað það vill. Það vill upp
og fram á við. Það vill vera lilekkur
í keðju þjóðanna, og það vill að ein-
angrun sú, sem til þessa hefur úti-
lokað þjóðina frá samskiptum við aðr-
ar þjóðir, verði nú upphafin.
í stuttu máli sagt: Nýr tími rann
upp yfir Grænlandi í fyrra sumar, og
nú hefur nefnd manna verið kölluð
til Kaupmannahafnar, og í henni eiga
sæti bæði Grænlendingar og Danir, og
þeir eiga að gera áætlanir um hina
3