Samvinnan - 01.03.1949, Síða 4
nýju tíð og þá stjórnskipunarhætti,
sem nú skulu upp teknir. Og það
verður að segjast, að tíminn var kom-
inn fyrir löngu.
Landið er stærsta eyja veraldar,
tvær milljónir ferkílómetra, en íbú-
arnir eru ekki nema rösk tuttugu þús-
und talsins. Þetta misræmi blasir þeg-
ar við augum, ströndin er svo strjál-
býl, að hvergi í veröldinni er hægt að
sjá annað eins, og þar með það, liversu
ólíkt fólkið er í hinum ýmsu byggðar-
lögum, vegna þessara staðhátta. Hugs-
ið yður þá staðreynd, að suðuroddi
Grænlands er á sömu breiddargráðu
og Osló, en norðuroddinn er langt
norðan við öll meginlönd veraldar.
Grænland teygir sig alla leið norður
að 84. breiddargráðu. Þessar stað-
reyndir er nauðsynlegt að hafa í huga.
Erfiðleikarnir við að setja lög fyrir
þjóðina eru miklir, og þá skilja aðeins
þeir, sem hafa kynnt sér landshætti
um langa hríð. Enn eru til forneskju-
legir siðir, sem erfitt er að losna við.
Danska ríkið hefur fram að þessu haft
einokun á Grænlandi. Dönsku kóng-
arnir áttu alla Grænlandsverzlunina
á dögum einveldisins. Þetta gamla
skipulag var aldrei afnumið til íulls.
Það var talað um að gera það hvað
eftir annað, en endalok þeirra um-
ræðna urðu jafnan þessi: Þeir eru enn
þá ekki hæfir til þess að stýra málum
sínum sjálfir! Ef endurbæturnar
hefðu algjörlega hvílt á stjórninni,
mundi þetta vera viðkvæðið enn í dag
og um ókomin ár, því að réttarbæt-
urnar fást ekki nema þær séu þving-
aðar fram. Verzlunin lýtur enn hinu
gamla skipulagi, ef hægt er að nefna
slíkt „verzlun", er Grænlendingur
kemur með veiði sína og selur hana
því verði, sem birt er á verðlistum,
sem prentaðir eru í Danmörku. Og
það er aldrei tekið neitt tillit til þess,
hvort þessir verðlistar eru réttlátir eða
ranglátir, og þeim er aldrei breytt,
enda þótt heimsmarkaðsverð stígi og
lalli. Stundum var ákveðið að breyta
dagsverðinu, en það voru skrifstofu-
menn í Danmörku, sem þær ákvarð-
anir tóku, því að þeir eru allsráðandi.
Enn þá hefur það aldrei komið fyrir,
að íbúar landsins hafi fengið að vera
þar með í ráðum. Einveldið er enn
við líði á Grænlandi.
Það var af þessum ástæðum, sem
forsætsiráðherra jafnaðarmannastjórn-
arinnar, Hedtoft, ákvað að láta ein-
staklingsframtakið fá hönd í bagga.
Nú á að breyta lögunum, svo að
danskir borgarar geti setzt að á Græn-
landi, því að Grænland á að verða
hluti af hinu danska ríki, og það mun
síðar koma í ljós, hver verður árang-
urinn af þessari stefnu.
Stjórnmálamenn í öðrum löndum
eiga erfitt með að skilja, hvers vegna
Hedtoft forsætisráðherra tók upp á
því á Grænlandi, að tala gegn ríkis-
verzlun og ríkisvaldi. En það var
áreiðanlega rétt gert, að tala þannig
við Grænlendinga, og hefði átt að vera
gert fyrir löngu. Þjóðin vissi ekki,
livernig sú stjórn var, sem réði ríkjum.
En nú verður breyting á þessu. Hin
stóra samvinnstefna hefur stungið
upp kollinum á Grænlandi. Eg vona
að menn skilji, að bezta lausnin væri,
að láta danska kaupfélagasambandið
(FDB) yfirtaka verzlunina, á þann
hátt, að í hverju byggðarlagi geti
menn valið fulltrúa sína, sem hafi
hönd í bagga með því, hvaða vörur
eru fengnar til landsins og kynnt
sér gæði þeirra og gagnsemi. Þessir
fulltrúar þurfa líka að hafa eftirlit
með verðlagsákvörðunum og sjá til
þess, að afgreiðslumennirnir séu kurt-
eisir og sanngjarnir. Og í hverri byggð
á Grænlandi má finna nægilega marga
menn, sem eru hæfir til þess að taka
þetta að sér. Og sá hópur mun stækka
með árunum.
Verzlunin á Grænlandi í dag er
hreinasta skrípamynd af því, sem
kallað er verzlun í öðrum lönd-
um. Grænlendingur kemur ak-
andi með selskinn og spik að
vetrarlagi. Hann stendur utan
dyra, þangað til verzlunarstjór-
inn kemur út úr verzlunarhús-
inu og hyggur að erindi við-
skiptamannsins. En slíkt er hin
mesta góðgjörðarstarfsemi við
veiðimanninn, sem er að reyna
að koma feng sínum í verð. Og
verzlunarstjórinn lofar honum
að sjá, hversu óendanlega hann
stendur hærra í mannfélagsstig-
anum með því að láta hann sjálf-
an slengja spikinu á vogina. Og
það er vegið, en um verðið þarf
ekki að deila, það er ákveðið í
eitt skipti fyrir öll. Að vigtuninni
lokinni má viðskiptamaðurinn
sjálfur bera feng sinn í geymslu
þá, sem stóri maðurinn bendir
til.
Nú er haldið inn í sjálfa verzl-
unina. Selskinn veiðimannsins
er lagt á borðið og verðlagt. Þrír