Samvinnan - 01.03.1949, Page 7
vinnufélögum, sem bezt hefur vegnað
hér á landi, var þroskun félagsmann-
anna sjálfra. Með árvekni og þolgæði
tókst forvígismönnum hinna ungu og
óreyndu samvinnusamtaka, að festa
mönnum í huga þá staðreynd, að um
leið og þeir höfðu bundizt félagsskap
til þess að taka verzlunina í sínar hend-
ur, voru þeir, hver og einn, orðnir
hlekkir í þeirri festi, sem aldrei mátti
bresta. Færi svo illa, var ekki einungis
efnaleg velferð þeirra í húfi, heldur
þýddi það einnig andlegt og siðferði-
legt skipbrot, er seint mundi bætt
Hagstæðari verzlun og aukinni
velmegun fylgdu bætt húsakynni,
ræktunarframkvæmdir og öflun nýrra
vinnuvéla.
Jafnframt því, sem rík áherzla hefur
verið lögð á það, að útvega hinar hag-
nýtustu erlendar vörur við sem hag-
kvæmustu verði, hefur þess verið gætt,
að vanda innlenda framleiðslu og alls-
herjar mat á henni hefur verið lög-
bundið.
Mestu átökin, sem samvinnufélögin
hafa gert, til framdráttar íslenzkri
SAMVINNUFÉLAGANNA
Friðgeirsson
verða. Þeini skildist, að nú voru þeir
komnir í þá aðstöðu, að vörusvik og
vanskil voru háskaleg brigð við þá
sjálfa, hin argasta sjálfsblekking. Brátt
varð þeim metnaðarmál að skila sem
mestri og beztri vöru til félags síns. Þá
máttu þeir ekki heldur gína yfir
stundar-gydliboðum kaupmanna. Und-
antekningarlítið skildist þeim, að slík
boð voru ekki annað en litskrúðug
fluga, sem koma átti í munn þeim,
fluga, þar sem öngullinn leyndist í
fjaðurskrúðinu.
Upp af þeim frjóanga, sem festi ræt-
ur í Þingeyjarsýslu harðindaárið 1882,
vermdur af hugsjónahita nokkurra fá-
tækra bænda, og nærður af þessu nýja
viðskiptasiðferði, spruttu síðan þeir
laufprúðu meiðar, sem nú teygja ræt-
ur sínar og breiða krónur sínar um
gjörvallt ísland, samvinnufélögin,
kaupfélögin.
Jafnframt því sem samvinnufélög-
unum óx styrkur, stæltust félagsmenn
þeirra andlega og efnalega. Minni-
máttarkenndin, sem grúft hafði eins
og kaldur skuggi yfir sálum fátækrar
alþýðu gagnvart kaupmannaliðinu,
hvarf. Hatursbeiskjan, sem gegnsýrt
hafði huga þjóðarinnar gagnvart hin-
um sömu aðilum, hvarf einnig, þegar
menn þurftu ekki lengur að skríða að
náðardyrum kaupmannanna til þess
að biðja soltnum börnum sínum
brauðs.
framleiðslu, eru byggingar slátur- og
frystihúsa, hraðfrystihúsa og mjólkur-
vinnslustöðva, svo að á fátt eitt sé
drepið í því efni. Þá má ekki heldur
gleyma því að Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga hefur ýmist eitt, eða í fé-
lagi við sumar sambandsdeildirnar,
gert mikil átök í iðnaðarmálum þjóð-
arinnar.
Þó hér sé fljótt yfir sögu farið og
stiklað á stóru, er augljóst af því, sem
nefnt hefur verið, að samvinnufélögin
hafa unnið mörg og mikil menningar-
hlutverk. Þau hafa ræktað félags-
hyggju í stað einstaklingshyggju meðal
mikils hluta þjóðarinnar. Þau hafa
lyft framleiðslu landsmanna úr hinni
örgustu niðurlægingu. Þau hafa
spornað við óreiðu og vanskilum í
verzlun, og sums staðar komið á full-
kominni staðgi'eiðslu. Þau hafa frelasð
almenning frá bölvun minnimáttar-
kenndarinnar gagnvart verzlununum.
Þau hafa kennt mönnum að skilja
þann sannleika, að verzlunin er þjón-
usta í þágu almennings, og að almenn-
ingur á ekki að vera til vegna hags-
muna verzlannanna. Þau hafa beint
og óbeint skapað hraustari, lífsglaðari,
framtakssamari og menntaðri þjóð á
Islandi en áður var. En þetta mikla
menningarhlutverk hefði þeim aldrei
tekist að vinna, ef þau hefðu aldrei
verið annað en viðskiptafyrirtæki ein-
göngu. En, sem betur fer, hafa íslenzk
samvinnufélög alltaf verið annað og
meira. Krónan hefur aldrei verið leidd
þar til hásætis, aldrei verið tilbeðin
þar, sem hið eina og sanna máttarvald.
Atkvæði hins fátækasta félagsmanns
hefur alltaf verið jafn þungt á vogar-
skál samvinnufélaganna og atkvæði
stóreignamannsins. í því liggur liinn
mesti, siðferðilegi styrkur fyrir félögin
sjálf, og hin mesta hvatning til dáða
fyrir félagsmennina.
Samvinnufélögunum hefur raunar
aldrei verið neitt mannlegt óviðkom-
andi. Eg minnist þess til dæmis ekki,
að nokkurt framfaramál hafi komið
á dagskrá í átthögum mínum, sem
ekki hefur átt stuðning kaupfélagsins
okkar, annað hvort beint eða óbeint.
Og eg veit að svo muni jafnan verða
framvegis.
Mikill þáttur þeirra menningar-
starfa, sem eg nú hef drepið á hefur
verið unninn svo að segja í kyrrþey
heima í kaupfélögunum. En Samband
íslenzkra samvinnufélaga hefur fyrir
sitt leyti um alllangt skeið unnið
mikið menningarstarf með rekstri
Samvinnuskólans, bréfaskólans, út-
gáfu tímarits, bókaútgáfu og síðast en
ekki sízt með starfsemi Fræðslu- og
félagsmáladeildarinnar, en frá henn-
ar hendi má vænta hins giftudrýgsta
styrks í því menningarstarfi, sem
hvert samvinnufélag verður að vinna
heima fyrir ef vel á að farnast.
Men n ingarhlu tverk sam vinnufé-
laganna hljóta að verða mjög hin
sömu á komandi árum og þau, sem
unnin hafa verið á liðnum árum. Ný
verkefni munu þó að sjálfsögðu fylgja
nýjum viðhorfum og nýrri þróun at-
vinnulífs þjóðarinnar.
Að sjálfsögðu lilýtur það að verða
hlutverk samvinnufélaganna, á kom-
andi árum, að fylgjast með tækni-
legri þróun atvinnulífs nágranna-
þjóðanna, og eiga lilut að því að
staðfæra hér þær þær nýjungar, sem
til heilla mega horfa. Vera á varð-
bergi gagnvart hverskonar nýungum
sem að gagni mega koma í félagsmál-
um. Halda uppi markvissri útbreiðslu
og kynningarstarfsemi áeðlisamvinnu-
stefnunnar meðal alþjóðar. En jafn-
framt því verður það jafnan höfuð-
verkefni lieima í hverju félagi, að
halda við og glæða þann anda, sem
ríkti meðal frumherja íslenzku kaup-
7