Samvinnan - 01.03.1949, Síða 14
■ \'. < ■ \
«-1(
reglustöð Lundúnaborgar. Gárungarnir hafa stungið upp á því,
að þangað ætti að fara með söngvarana, er þeim tækist ekki að
blása lífi í hlutverk sín. Skammt frá óperunni er einn mesti
blóma- og ávaxtamarkaður veraldar. En Covent Garden hefur
ekki ævinlega verið í skugga annarra stórhýsa í London. Húsið,
sem nú stendur þar, er hið þriðja í röðinni. Þegar hið fyrsta var
byggt, árið 1732, var það í hjarta borgarinnar og blasti við allra
augum. Það hefur margt breytzt í London á skemmri tíma en
rösklega þremur öldum.
Leikhúsið — sem svo var kallað — tók til starfa árið 1732, undir
stjórn hins fræga leikara John Rich. Fyrsta viðfangsefni þess var
hinn kunni gamanleikur Congraves, „The Way of the World“.
Næsta viðfangsefni var „Ópera betlarans". Á þessum árum var
nafn tónskáldsins Hándels tengt húsinu, og það var þar sem hann
lét flytja „Messías" sinn brezkum almenningi í fyrsta sinn, árið
1743, skömmu eftir að verkið hafði verið flutt í fyrsta sinn í
Dublin. Árið 1767 er þess getið í skráðum heimildum, að ung
kona hafi þá flutt aríu úr óratórío eftir brezka tónskáldið Arne, og
að undirleikurinn hafi verið „á nýtt hljóðfæri, sem kallað er
Píanó Forte“.
FYRSTU ÆVIÁR leikhússins voru viðburðarík. Árið 1763 kom
til uppþots í húsinu af því að leikhússtjórinn hafði svikist um
að hleypa almenningi inn eftir þriðja þátt fyrir hálft gjald, en
það var hefð í London. Þremur árum seinna gerðu ballett-dansar-
ar hússins verkfall til þess að mótmæla því að þurfa að koma fram
í garnsokkum í stað silkisins, sem áður var tízka. Þriðja og alvar-
legasta áfallið kom árið 1808, og þar endar saga þessarar bygging-
Leikskrár óperunnar eru oft skrautlegar og skemmtilegir ar_ Húsið brann til kaldra kola og með því mikil Verðmæti, þar á
minjagnptr um veruna par. Þetta er em hin frœgasta petrra, ° . -
forsiðan teiknuð af kunnum listamanni i tilefni af hátiða- rneðal obcEtanleg ha.nd.rit eftir tonskaldin Hándel og Arne. Arið
sýningu tii heiöurs Frakkiandsforseta áriö 1939. 1809 lagði brezki krónprinsinn, síðar Georg IV, hornsteininn að
UM ÞESSAR mundir er starfstíma-
bil óperanna í höfuðborgum
heimsins. Það hefst venjulega upp úr
nýjárinu og stendur fram á vorið. —
Meðal þessara ópera er hin sögufræga
og virðulega brezka ópera, Covent
Garden. Fáir munu þeir ferðamenn,
sem koma til lieimsborgarinnar við
Thames að vetrinum, sem ekki freista
þess að fá aðgöngumiða að sýningu í
þessu fornfræga húsi. En ekki eru allir
svo lánssamir að mega dvelja í Lund-
únaborg á þessari árstíð. Það getur því
verið fróðlegt fyrir þá, sem heima sitja,
að kynnast þessari merku stofnun lítið
eitt af orðum og myndum.
ÁRUNNUR ferðamaður í London
gengur tæplega að Covent Gar-
den eins og hesti í haganum. Óperu-
húsið blasir engan veginn við auga.
Það hefur þokast í skuggann með öld-
unum, er liðið hafasíðanfyrstvarbyggt
óperuhús á þessum stað. Húsið stend-
ur við óásjálega hliðargötu skammt frá
Strand, gegnt einni kunnustu lög-
14
„Covent Garden“
— konunglega óperan í London
Nöfn fraegra tónskálda eru tengd hinni
300 ára gömlu brezku óperu
Þessi mynd er frá hinni hátiðlegu opnunarsýningu i febrúar 1946. Konungsstukan er neösl
til hœgri, og eru konungshjónin þar á myndinni.