Samvinnan - 01.03.1949, Síða 16
Verið að „slá undir“ trollið, þ. e. festa það við bobbingana. Hásetar vinna það verk. Tómar
lýsistunmir eru settar um borð. Lýsið er sett á geymi i veiBiferðunum, en tunnurnar hafðar til
vara. Kaldbakur liggur þarna við bryggju á Oddeyrartanga.
VEIÐISKAPUR, og aflasölur ís-
lenzka togaraflotans á erlendum
mörkuðum. cr daglegt fréttaefni út-
varps og blaða. Nærri daglega er eitt-
hvert hinna fríðu skipa í Fleetwood,
Hull eða Grimsby, eða í Bremerhaven
og Hamborg, að landa afla af Hala eða
Eldeyjarbanka. Gjaldeyrisöflun tog-
araflotans er mjög mikilvægur þáttur
þjóðarbúskaparins. Almenningur veit
vel, að góðar sölur skipanna á erlend-
um markaði tákna aukna möguleika
þjóðarinnar til þess að kaupa fæði og
skæði erlendis og vaxandi velmegun í
landinu. Hitt vita færri, hversu starf-
ræksla nýja togaraflotans er mikilvæg
atvinnugrein fyrir jrá, sem ekki stunda
sjóinn og ekki sigla með skipunum á
fiskimið eða til erlendra hafna. í sam-
bandi við togaraútgerðina er margvís-
leg atvinna í landi fyrir fjölda manns,
útbúnaður skipanna þarfnast eftirlits
og umönnunar, útgerðin rekur um-
fangsmikla skrifstofustarfsemi og síð-
ast en ekki sízt — veiðarfærin, sem sópa
gullinu úr greipum Ægis — hin stór-
virka og umdeilda botnvarpa — liefur
hrundið af stað iðnaði í landinu, sem
er um margt merkilegur og á sinn ríka
þátt í því, að íslendingar afla nú hlut-
Islenzk botnvörpugerð
Stutt frásögn í or
fallslega meiri fiskjar á höfunum en
nokkur önnur þjóð.
SAMVINNAN hefur nýlega heim-
sótt trollhnýtingarverkstæði — nýtt
fyrirtæki, er útgerð Akureyrartogarans
Kaldbaks hefur komið á fót á Oddeyr-
artanga — og aflað sér þar fróðleiks um
þessa hlið útgerðarinnar, sem sjaldan
lieyrist getið í fréttum, þótt hún sé eigi
að síður augljóslega mikilvæg. A þessu
verkstæði eru hnýttar botnvörpur fyr-
ir þetta mikla aflaskip og ýms önnur.
Slík verkstæði munu nú vera stofnsett
í sambandi við togaraútgerðina í flest-
um þeim kaupstöðum, sem gera hin
nýju skip út á veiðar. Á hverju slíku
verkstæði vinnur margt manna, á Ak-
ureyrarverkstæðinu vinna t. d. 10—20
stúlkur árið um kring, auk verkstæðis-
formanns.
Stúlkur á netahnýtingarverksta:
16