Samvinnan - 01.03.1949, Síða 17
í - mikilvæg iðngrein
ðum og myndum
ÞlGAR FRÉTTAMAÐUR og ljós-
myndari Samvinnunnar komu á
vettvang var starfað a£ fullum krafti á
verkstæðinu við hnýtingu trollnet-
anna. Helgi Hálfdánarson forstöðu-
maður tók sér dálitla hvíld frá störfum
til þess að sýna verkstæðið og skýra
starfsemi þess.
Áður en nýji togaraflotinn sigldi hér
í höfn, voru nokkur verkstæði til í
landinu, þau helztu í Reykjavík og á
Patreksfirði. íslenzkir togarasjómenn
fengu snemma þá reynslu, að erlendar
botnvörpur voru ekki að öllu leyti að
þeirra skapi. Hver togaraskipstjóri
hefur sínar eigin hugmyndir um það.
hvernig hann vill hafa sína botnvörpu,
og hvert verkstæði á sjálfsagt sitt hern-
aðarleyndarmál á því sviði. Staðreynd
er, að enda þótt hinar íslenzku botn-
vörpur séu mun dýrari en erlendar,
ðinu á Akureyri að hnýta net.
Helgi Hálfdanarson að ,,setja inn undirvœng", þ. e. að festa „bolsið" eða linuna við netið. Helgi
stjórnar nelaverkstœði Kaldbaks, var áður verkstœðisformaður á Patreksfirði, en þar er fullkomn-
asta netahnýtingarverkstœði landsins.
vegna hins háa framleiðslukostnaðar
hér, halda útgerðarfyrirtækin samt
áfram að nota þær og hyggja ekki á
skipti. Dugnaður og fengsæld íslenzkra
togaramanna hefur án efa sniðið botn-
vörpunni hér annan stakk en hinni er-
lendu, enda alkunnugt að íslenzkir
togarar eru aflahæstu skip veraldar.
Síðan nýju togararnir tóku land hér
hafa risið upp mörg verkstæði. Má þar
fyrst nefna Akureyrarverkstæðið og
eru myndirnar á þessum blaðsíðum
þaðan, þá má nefna verkstæði í Vest-
mannaeyjum, Keflavík, ísafirði, Nes-
kaupstað og Seyðisfirði, auk hinna
eldri verkstæða, sem áður voru nefnd
og nokkurra annarra, sem einkum
linýta troll fyrir minni báta. Stærsta
verkstæði landsins er Hampiðjan í
Reykjavík, sem selur bæði uppsettar
botnvörpur og hluta í þær.
Efnið í botnvörpurnar er að sjálf-
sögðu fengið erlendis frá. Á seinni ár-
um hefur einkum verið notaður belg-
ískur trolltvinni, sem svo er kallaður,
og þykir gefast vel. Sömuleiðis eru tóg
til varpanna einnig fengin frá Belgíu.
Starf netahnýtingarverkstæðanna er,
að búa til botnvörpurnar úr þessu hrá-
efni, hnýta netin í „stykki“ og ífella og
17