Samvinnan - 01.03.1949, Qupperneq 25
KONURNAR OG SAMVINNAN
bandið, sem hefur með höndum
mjög athhyglisverða starfsemi til
þess að endurbæta gerð húsgagna,
leirkera, skrautmuna og annars
þess, sem fólk notar til heimilisþæg-
inda og heimiilsprýði. Hefur verið
greint nokkuð frá þeirri starfsemi
áður hér í ritinu og því eigi ástæða
til að endurtaka það hér.
—o—
„Samvinnan" birtir hér á þessari
blaðsíðu þrjár myndir af búshlut-
um, sem athygli vöktu. Bera þeir
allir vott um ágæti sænskrar fram-
leiðslu og um listrænt form, en á
það er lögð mikil áherzla.
Sviar leggja mikla áherzlu á létt, einföld og Ijós húsgögn, en vilja forðast hinn þunga, dökka og
drungalcga húsbúnað. Þessi stofa hlaut viðurkenningu fyrir lislrœn form húsgagnanna, hagnýta
gerð og framúrskarandi vandaða vinnu.
Vörukennsla sænsku húsmæðradeildarinnar
SNEMMA á þessu ári efndu hús-
mæðradeild sænska samvinnu-
sambandsins og sænska samvinnu-
tímaritið Vi til merkilegrar sam-
;; keppni um gæði að listrænt form
Iheimilistækja og húsbúnaðar. Alls
var heitið 700 verðlaunum, samtals
um 20 þúsund sænskar krónur. í
;; þessari samkeppni var og gert ráð
;; fyrir verðlaunum til þeirra hús-
;; mæðra, sem sendu húsmæðradeild-
;; inni hagnýtustu baksturs-uppskrift-
|; ir. Uppskriftirnar voru reyndar í
<1 reynslueldhúsi húsmæðradeildar-
!| innar og úr látið skera, hvað var í
!; senn hagnýtast, ódýrast og hollast,
;; en ekki það, hvað var skrautlegast
i’ og „sætast“. Alls kyns heimilistæki
i; og húsgögn voru send til sam-
j; keppninnar af framleiðendum, og
J; var þar margt nýstárlegt og gagn-
;| legt að sjá, svo sem nýja tegund af
;! rafmagnssaumavélum frá Hugin-
<! samvinnuverksmiðjunum, alls kon-
!; ar leirvörur og postulínsvörur frá
Gústafsbergi, hinni frægu leirvöru-
og postulínsverksmiðju samvinnu-
manna, luisgögn hvers konar o. m.
fl.
SAMKEPPNI þessi hafði tvenns
konar tilgang. í fyrsta lagi að
kynna landsfólkinu hinar nýjustu,
smekklegustu og gagnlegustu fram-
leiðsluvörur samvinnufyrirtækj-
anna og leiða athygli að leit þeirra
að liagnýtum heimilisbúnaði. Og
í öðru lagi var hún stórfelld aug-
lýsing um menningarhlutverk sam-
vinnuhreyfingarinnar og þá miklu
áherzlu, sem lögð er á vöruvöndun
af sænsku kaupfélögunum og fyrir-
tækjum þeirra.
Þótt sænsku kaupfélögin liafi haft
forgöngu um þessa starfsemi, og
þeim beri að þakka brautryðjenda-
starfið, leggja nú önnur kaupfélög
dyggilega hönd á plóginn. Má þar
til nefna danska kaupfélagasam-
Maiursett af þessari gerð frá Gustafsberg-
verksmiðjunum, hlaut viðurkenningu. Þetta
er súþuskál eða súpubolli. Mynstur settsins
og gerð er öll hin smekklegasta og efnið
mjög endingargott.
Þessi sœnski hraðsuðuþottur hefir verið marg-
reyndur á vísindalegan hátt, og hefir hann
reynzt fullkomlega öruggur og standa sizt að
baki erlendri framleiðslu. Og verðið er
áreiðanlega samkeppnisfcert, — það er 44 kr.
samskar fyrir pottinn. Þessi ágœti gripur
fékk verðlaun.
25