Samvinnan - 01.12.1964, Blaðsíða 13
Hjörtur Hjartar, framkvæmdastjóri:
Samvinnuskip í átján ár
Þegar „Hvassafell“ kom til
landsins hófst nýr þáttur í
starfi samvinnumanna. Síð'-
an eru liöin 18 ár og er það
meira en nægur tími til að
leiða í Ijós, hvort með þessu
var stigið rétt spor eða ekki.
Samvinnumenn um allt
land fögnuðu almennt þessu
nýj a og fallega skipi og buöu
það velkomið. Það voru hins-
vegar til ýmsir með önnur
sjónarmið. Því var haldið á
loft, að óþarfi væri fyrir
Sambandið að skipta sér af
flutningamálunum, þau
heyrðu öðrum til og á það
svið ætti SÍS ekkert erindi.
Þessi skoðun var óréttmæt,
enda studd veikum rökum
og er ekki lengur við lýði.
Reynslan hefir sýnt, að það
var ekki aðeins rétt, heldur
líka nauðsynlegt fyrir kaup-
félögin og Sambandið að
ráða eigin kaupskipaflota.
Það hafði um langt árabil,
áður en í kaup „Hvassafells"
var ráðizt, verið svo, að Sam-
bandið tók erlend leiguskip,
aðallega á vorin til þess að
flytja timbur og sement til
félaganna. Á haustin komu
svo kolaflutningar, sem
leystir voru á sama hátt. Hér
var því fyrst og fremst um
það að ræða, að skipt var á
erlendum flutningaskipum
fyrir íslenzk. En jafnvel
þessi einfalda og augljósa
staðreynd virtist dulin þeim,
sem skömmuðu samvinnu-
hreyfinguna fyrir nýbreytn-
ina.
Nú eru allar þessar raddir
löngu þagnaðar og reynzlan
hefir sýnt, að það var ekki
aðeins rétt af Sambandinu
að eignast eitt skip, heldur
þurftu þau að vera fleirri.
Skammur tími leið, þar til
annað skip bættist í sam-
vinnuflotann. Sambandið lét
smíða „Arnarfell" í Sviþjóð
og kom það til landsins 1949
og svo bættist frystiskipið
„Jökulfell“ við árið 1951.
Á stuttum tíma var flot-
inn, sem bar hinn ein-
falda en fagra fána Sam-
bandsins, því orðinn 3 skip.
Þetta bætti úr brýnni þörf,
en verkefni voru enn sem
fyrr svo mikil að fjöldi leigu-
skipa var í tímabundinni
þj ónustu Sambandsins.
„Jökulfell“ hafði sem
frystiskip sérstöku verkefni
að sinna, en „Hvassafell" og
„Arnarfell“ hæfðu vel flest-
um höfnum landsins og voru
hentug og góð til almennra
vöruflutninga. Það voru samt
nokkrir staðir, sem ekki
höfðu hafnaraðstöðu til þess
að geta afgreitt þau og til
þess að leysa þarfir þeirra
byggðarlaga, sem verst voru
sett í þessu efni, var ákveð-
ið að byggja minna skip, sem
sérstaklega hentaði hinum
smæstu höfnum. Þetta skip
var byggt í Hollandi og gefið
nafnið „Dísarfell“ með
heimahöfn í Þorlákshöfn.
Þegar það kom þangað í
fyrsta sinn, fagnaði því mik-
ill mannfjöldi. Fólkið í þessu
byggðarlagi hafði búið við
hafnleysi og verið án sam-
gangna á sjó, en það sá í
þeim atburði, sem þarna var
að gerast fyrir forgöngu
samvinnuhreyfingarinnar —
tákn betri komandi tíma.
Á árunum 1954 til 1956
bætast síðan enn þrjú skip
í Samvinnuflotann. „Litla-
fell“ og „Helgafell“ komu
1954 og „Hamrafell“, stærsta
skip sem íslendingar hafa
eignazt var keypt 1956.
Hjörtur Hjartar, fram-
kvæmdastjóri Skipadeildar SÍS.
Með þessu gerast þáttaskil
í skiparekstrinum. Þegar
„Litlafell“ var keypt hefst
flutningur á olíu með strönd-
um fram. Á þessu var rík
nauðsyn. Olíufélagið h.f.,
sem stofnað var fyrir for-
göngu Vilhjálms Þór, for-
stj óra Sambandsins, sama
árið og fyrsta Sambands-
skipið var keypt, þurfti í
vaxandi mæli að flytja olíu
til landsbyggðarinnar. Það
varð því að ráði, að taka upp
samstarf með þessum jafn-
öldrum, Skipadeild SÍS og
Olíufélaginu, og kaupa og
reka „Litlafell“ sameigin-
lega.
Á sama grundvelli var
stofnað til kaupa „Hamra-
fells“ og byggingar „Stapa-
fells“.
Olíuflutningarnir eru einn
þýðingarmesti þáttur í inn-
flutningi til landsins. Þeir
fara hraðvaxandi ár frá ári
og eru um helmingur, að
þunga til, alls þess varnings,
sem inn er fluttur árlega.
Rekstur Sambandsskip-
anna hefir yfirleitt gengið
vel. Sveiflur hafa þó verið
nokkrar frá ári til árs, eftir
því aðallega, hvernig mark-
aðsfragt í V-Evrópu hefir
verið hverju sinni, því að við
hana hefir meginhluti farm-
gjalda Sambandsskipanna
miðazt. Rekstur „Hamra-
fells“, út af fyrir sig, hefir þó
flest árin verið næsta erfið-
ur og skipið ekki staðið und-
Framh. á bls. 57.
Mælifell, nýjasta skip SÍS, siglir í fyrsta sinn inn á heimahöfn sína, Sauðárkrók. FjalliS Mæli-
fell, sem skipið er heitið eftir, sést til hægri á myndinni. Myndina tók Stefán Pedersen.
SAMVINNAN 13