Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1964, Page 19

Samvinnan - 01.12.1964, Page 19
arfélaga Þingeyinga, er fögn- nðu okkur og buðu velkomna í Þingeyjarþing. Var þar glatt á hjalla og ræður fluttar með leikandi tungutaki og í þundnu máli, því Þingeyingar eiga mörgum fulltrúum Braga á að skipa. En allt hafði sinn afmarkaða tíma, og fararstjórinn, sem nú var og veizlustjóri fyrir hönd B. í., sagði að minnast yrði þess, að nú væri fyrir hendi einn lengsti fjallvegur á land- Inu. Er kom í Námaskarð birti yfir .Þoka lá aðeins yfir hæðstu fjallatindum og huldi mad- dömu Herðubreið niður í miðj- ar hlíðar. En hásléttan og af- staða ýmissa fjalla og kenni- leita var augliós. Þama um ör- æfi sýndist ekki grösugt, að- eins melgresi og smáger fjalla- gróður, þar sem dró til lauta eða afdreps fyrir stormum. Skammt var ekið hjá garði á Grímsstöðum á Fjöllum, og Víðihól er þar að líta í fjar- lægð. Löng hefir verið leiðin milli Grímsstaða og Mörðudals á farartækjum genginna kyn- slóða, því drjúgur fannst okk- ur spölurinn nú. Með garði er ekið að Möðrudal. Margar sagn- ir um þennan fræga stað komu í hugann, en mér var af gefnu tilefni, minnisríkust þjóðsag- an um prestinn í Möðrudal, og komu í hug mér myndir þær, er Stefán frá Hvítadal, kom með í ljóði sínu um Klerkinn í Möðrudal. Frá þeim hugleið- ingum vakna ég ekki, fyrr en staðnæmzt er hjá eyðibýlinu Rangalóni. Er þar dalverpi milli fjallahnúkanna, graslendi nokkuð, en langt á milli bæja. Hollt mun okkur nútímafólk- inu, að nema staðar á þessum stöðum og íhuga sögur þær sem hafa gerzt hjá kynslóðum liðinna alda. Hafa þau skáld- in Jón Trausti og Halldór Lax- ness gefið ýmis sýnishom af því í bókum sínum Heiðarbýl- inu og Sjálfstæðu fólki. Enda að sögn hafa sögur þessar átt að gerast í nánd við Rangalón. Er komið er austur undir Jökuldalinn, verður heiðin grösug og búsældarlegra yfir að líta. Sagt var að þama hafi verið fram um s.l. aldamót, fjöldi bændabýla, og sumt stórbýli. Sauðfé bænda svo skipti hundruðum, enda heiða- löndin gjöful og kostarík. En vel má hugsa sér að veturnir hafi verið langir, og sumartíð- in komið seint. Er komið var að Skjöldólfs- stöðum á Jökuldal, voru þar fyrir bændahöfðingjar Héraðs- búa. Meðal þeirra hinn ókrýndi konungur þeirra, Sveinn bóndi Jónsson á Egilsstöðum. Buðu þeir Strandamenn velkomna til Fljótsdalshéraðs. Var nú gest- um boðið til náttstaða um Jök- uldal, Jökulsárhlíð og Hróars- tungu. Öllum leið vel og dáðu sína gestgjafa, og komu vel sællegir til síns sætis að morgni. Ég gisti að Hallfreðar- stöðum. Fórum við er þar gist- um ekki varhluta af risnu og höfðingsbrag gestgjafanna. Páll Ólafsson var horfinn, hans brostin brá, en Ijóð hans voru heima. Kuml Litla-Rauðs og Jarpar eru í hlaðvarpanum, og bóndinn heldur reisn stað- arins, að veita gestum sínum „tárið“ ef þeir vilja. Gestgjaf- inn ók okkur í veg fyrir bílinn að þrúnni við Fossvelli. Var nú haldið sem leið liggur fyrir heiðarsporð Fljótsdalsheiðar um Fellin til Lagarfljótsbrúar. Skiptast þarna á klettaborgir, kjarri vaxnar, og mýrarsund, sem og í Hróarstungum. En þarna eru miklar sauðjarð- ir, og bændur vel efnaðir. Við Lagarfljótsbrú, norðan fljóts var áð. Bílstjórarnir tóku olíu á bílana og fólkið fékk sér nesti. Að kunnugra sögn var langur áfangi framundan, til Heydala í Breiðdalsvík, 87 km. Landið austan Lagarfljóts kall- ast Vellir. Eru þar fyrst Egils- staðir, sem nú er orðið þorp með iðnaði og miðstöð Héraðs- búa og Austfirðinga, auk þess sem Sveinn bóndi býr þar einu stærsta búi á Austurlandi. Leiðin liggur um Ketilsstaði, þar var sýslumannasetur um langan aldur. Meðal annarra var þar Páll Melstað, síðar amt- maður og þar hefir máske ver- ið ort vísan: Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. Vatnsenda-Rósa. Er inn í Skriðdalinn kemur, þrengist útsýnin. Mest þer þar á und Múlanum hinu forna prestssetri, Þingmúla á Skrið- dal. Leiðin liggur um hóiana, sem fallið hafa úr fjallinu og dalurinn hefur hlotið nafn sitt af. Breiðdalsheiði er lág og stutt, en niður í Breiðdalinn er hlíðin brött, sneiðingar krapp- ir, og fannst því sumum skammt milli lífs og dauða. En gifta Strandamanna, örugg handtök bílstjóranna og for- sjón almættisins voru þar að verki, og allt gekk vel. Er komið var að innsta bæn- um í dalnum, vék sér heima- maður að bílunum og óskaði eftir fari. Kvaðst hann ætla að vera í fagnaði er okkur yrði haldinn í samkomuhúsi hreppsins. Þannig var okkur fagnað með viðbót eins eða fleiri af hverjum bæ allt til Heydala. Er þangað kom var margt heimamanna fyrir, að sjá og fagna þessum framandi búendum af Ströndum norðan. Var nú sezt að rausnarlegum veitingum í myndarlegu sam- komuhúsi Breiðdalshrepps. Nutum við gestir óblandinnar ánægju yfir góðum veitingum og samræðum. Milli þessara fjarlægu héraða höfðu sjald- an gefizt tækifæri til kynninga. Og stundin var fliót að líða. Fararstjórinn kvað langan veg enn ófarinn til náttstaða. Nú var veðrið breytt, komið úr- hellis regn og fyrsta flokks austfirzk þoka. Fengum við að heyra margar sögur um mögn hennar. Löng fannst okkur leiðin um Berufjarðarströnd og kringum fjörðinn til Djúpa- vogs. En þá fór að létta til og sást til fjalla sem að sumu minntu á Vestfjarðafjöllin. Undir Lónsheiði að vestan beið okkar innilega glaðvær og föngulegur hópur Austur- Skaftfellinga. Eftir að hafa skipzt á kveðjum, var ferðinni haldið áfram en okkur var dreift til gistingar á bæina frá Lónsheiði til síðustu bæja í Suðursveit. Hverjum og einum var afhent einskonar boðskoit, þar sem á var letrað: „Vel- komin í sveit okkar,“ gistmg- arstaður, og dagskrá meðan dvalið var hjá Búnaðarsam- bandi A-Skaftfellinga. Nú skyldi lifað áhyggjulausu lífi, en nota tímann sér til fróðleiks og skemmtunar. Einn Strandamaður er bú- settur á Höfn, Óskar Helgason símastjóri mjög vel látinn í starfi og traustur og áhuga- samur í öllum menningarmál- um héraðsins. Er komið var að Bjarnarnes prestssetri, vatt sér inn í bílinn rösklegur og mynd- arlegur maður, ljósrauður á hár, þó með nokkurn skalla að framan. Mátti jafnvel halda þar væri kominn sálnahirðir þeirra um Lónið og Nesin. En hér fór sem oftar, villur fer sá er geta skal. Hér var á ferð bóndinn í Stóru-Lág. Hann spyr eftir Guðbrandi á Brodda- nesi og tveim bændum, sem ekki voru með frúr sínar og bauð þá velkomna á heimili sitt. Beið hann okkar með bíl sinn. Ekið var heim á vel hús- aðan og reisulegan bæ. Til beggja hliða við veginn voru bylgjandi töðuvellir og lengra frá sáust dökkgrænir kartöflu- akrar. Á býli Sigfinns bónda Pálssonar var land jarðarinn- ar neðan þjóðvegar, allt rækt- að töðu og kartöflum. Kýr voru á beit neðan túnsins á flæði- engi, þar sem jökulfljótið fell- ur í hafið, og flæðir þar yfir í stórstreymi. Þarna leið gest- unum vel. Mikill myndarbrag- ur á öllu innanhúss sem utan. Fjölskyldan greind og skemmtileg. Sunnudaginn 16. júní var brugðið blundi kl. 7 að morgni, þá var hin rósfingraða morgungyðja komin hátt á loft og ók til vesturs. Þokan huldi austurloftið, en yfir jöklunum í norðri og vestri var dimmur þokubakki. Var okkur því lok- uð sýn til fjallanna. Að loknum veitingum bauð Sigfinnur að aka með okkur um nágrennið, og var stefnt til kauptúnsins. Höfn stend- ur á grasi grónum klettahöfð- um, sem nær fellur að. Þama er gróðursælt, hlýlegt og fag- urt um að litast. Innsiglingin er að sögn vandfarin, en eftir að inn er komið, úr sundinu, er sléttur sjór og skipalægi ör- uggt. Þarna er byggð töluverð og atvinnuskilyrði góð til lands og sjávar. Mestar byggingar voru fiskvinnslustöðvar. Þá var og verið að ljúka við myndar- legt félagsheimili, Mánagarð. Það mun hafa verið rétt eftir síðustu aldamót, að þess var getið í fréttum og olli umræð- um og blaðaskrifum, er Horn- firðingar reistu undir sama þaki, kirkju og samkomuhús. Samkomusalurinn var neðri hæð, kirkjan efri hæð. Stend- ur þetta hús enn á áberandi stað, sem sést vítt að. Nú er verið að reisa nýja kirkju heima á prestssetrinu í Bjam- arnesi. Er umhverfið ólíkt og stíil hússins annar. Að afloknum hádegisverði var samkvæmt áæijlun, ekið vestur til Suðursveitar, að Hrollaugsstað ,þar sem land- náma segir Hrollaug jarlsson hafa numið land og byggt bæ sinn. Er komið var inn í bifreið- ina voru þar fyrir heimamenn, til kynninga og leiðbeininga. Veitti ég þar eftirtekt vörpu- Framh. á bls. 45. SAMVINNAN 19

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.