Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1964, Síða 29

Samvinnan - 01.12.1964, Síða 29
4 Nautatunga meff grænmeti. Ávaxtaskál. Skreyta má bakka eða skál meff greni eða lyngfléttu, það gerir skálina stærri og jólalegri. S Ú P U R Brún soffsúpa. 1—IV2 kg bein, grænmeti, 11/2 1. vatn, salt. í brúna soðsúpu má að sjálf- sögðu nota margskonar súpu- kraft en bezt verður súpan úr nautabeinum. Beinin eru söguð smátt, rað- að í pott og soðin í saltvatni ásamt grænmetinu t. d. gulrót, lauk, seljurót og blaðlauk en það fer eftir árstímum og er þurrkað grænmeti notað í stað- inn, sé ekki annað fyrir hendi. Smátt skorið kjöt gerir soðið bragðmeira, einnig verður súp- an dekkri og bragðmeiri ef beinin eru brúnuð áður en þau eru soðin. Soðið í 2—4 klst. við hæg(an hita. iSíað á þéttum kút og látið bíða á köldum stað til næsta dags. Þá er fit- an tekin ofan af, síað og soðið áfram í hlemmlausum potti, ef tími vinnst til þá verður soð- ið bragðmeira. Bragðbætt með salti, pipar, papriku og víni (sherry) ef vill og dekkt sé þess þörf. Athugið að fyrst og fremst á kjötbragðið að koma fram. Borin fram með smáum kjötbollum eða kjötteningum, káli til dæmis gulrótabitum, aspargus eða grænum baunum. Einnig er gott að hafa brúnaða sveppi eða lauk í þessa súpu. í stað áðurnefndra tegunda eru egg höfð t. d. hrá eggja- rauða í hvern súpudisk, eggja- hlaup sem þá er skorið í ræm- ur — eða teninga blæjuegg eða harðsoðin egg, sem er fallegt að bera fram á eftirfarandi hátt. Skerið eggin í tvennt eft- ir endilöngu og takið rauðurn- ar úr, hrærið þær msð matar- olíu og kryddi. Sprautið síð- an rauðunum aftur í eggja- helmingana og berið þá fram með súpunni, sem á að vera vel heit og bragðsterk. Sveppasúpa 250 g nýir eða niðursoðnir sveppir, 3 msk. smjör, 1 lítill laukur, salt, hvítur pipar, 2 msk. hveiti, iy2 1. soð, 1 eggja- rauða, 1 dl. rjómi. Hreinsið sveppina, séu þeir nýir, og skerið í tvo til fjóra hluta. Bræðið smjörið og sjóðið svepp- ina þar í ásamt smátt skorn- um lauknum. Kryddið og stráið hveiti yfir. Hrærið soðinu sam- an við og sjóðið í 5—10 mín. Þeytið eggjarauðu og rjóma í súpuskálinni og blandið súp- unni saman við smátt og smátt. Ostastengur eða kex eiga vel við þessa súpu. FORRÉTTIR Rækju- effa humarsalat Salatið má bera fram sem fyrsta rétt til miðdegisverðar, álegg á brauð eða á kvöldverð- arborðið. Sé salatið borið fram sem fyrsti réttur til miðdegis- verðar er fallegt að bera það fram í smáskálum eða brauð- kollum (tartalettum). Sjóðið rækjurnar eða hum- arinn í saltvatni (rækjurnar eru aðeins hitaðar upp að suðu). Kælið og hellið sítrónu- safa yfir. Hrærið olíusósu (mayonnesse úr tveim eggia- '4P- ís með súkkulaðisósu. rauðum) kryddið með salti, sítrónusafa, enskri sósu, tóm- atkrafti (víni t. d. sherry) og blandið að síðustu 1—2 dl. af þeyttum rjóma saman við. Setjið 2—3 msk. af rækjum eða humar á hvern disk og leggið salatblað meðfram eða undir á þeim tímum, sem það fæst. Setjið síðan 2—3 msk. af sósunni yfir og skreytið að síð- Framh. á bls. 39. SAMVINNAN 29

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.