Samvinnan - 01.12.1964, Side 37
FÖNDURSÍÐAN
HEIÐLOAN er söguð út úr 5 mm. krossviði, helzt birki. —
Þið þurfið að saga nákvœmlega eftir útlínunum og slipa
siðan vel allar brúnir með fínni þjöl og sandpappír. Tapp-
inn að neðan, þar sem stendur „Lóa“, gengur niður í hœfi-
lega stóran pall úr krossviði, svona 18x7Vi sm. og helzt þarf
hann að vera úr 6 mm. krossviði. Þegar þið hafið gert rauf
niður i pallinn, hœfilega stóra fyrir tappann, límið þið fast.
Bilið milli lappanna á lóunni er rétt að skilja eftir ósagað,
annars er hœtt við, að fceturnir vilji brotna. Nú þarf að mála
lóuna. Lesið um hana i náttúrufrœðinni, og reynið að hafa
sem eðlilegastan lit á henni. — Pallurinn að neðan mœtti
vera grœnn. — Ef þið notið vatnsliti, má lakka með Cellou-
loselakk á eftir. G. H.
í þessu hefti Samvinnunnar byrjar föndurþáttur,
sem ætlast er til að komi í hveriu hefti í vetur. Verður
hann miöaður við það, að allir laghentir drengir og
ctúlkur geti með einföldum áhöldum notað sér hann
og haft af honum gleði.
A. m. k. til að byria með, koma í honum teikningar
af íslenzkum fuglum, eftir Gauta Hannesson kenn-
ara, ætlaðar til þess að saga út eftir þeim. Þannig á
að vera hægt að koma sér upp smá fuglasafni, og
beita hugkvæmni og handlagni til þess að gera það
sem bezt úr garði. Og þótt teikningarnar séu gerðar
til útsögunar vill Samvinnan varpa fram þeirri hug-
mynd til ungu ctúlknanna, hvort þær gætu ekki saum-
að út eftir þeim og fengið til þess góð ráð hj á mömmu,
kennaranum sínum, eða einhverjum öðrum. Það væri
ekki amalegt að koma sér upp borðdúk með saumuð-
um fuglamyndum.
En hvað sem því líður vonar Samvinnan að þátt-
urinn geti orðið einhverjum til gleði og þroska.
Ritstj.
SAMVINNAN 37