Samvinnan - 01.12.1964, Síða 56
hófst í miðstjórn Alþjóðasam-
vinnusambandsins, var haldinn
f undur i Cooperative Wholesale
Committee, eða heildsölu-
nefndinni, sem starfar innan
Alþjóðasambandsins. Þessi
nefnd hefur það hlutverk, að
byggja upp nánara viðskipta-
samband milli hinna ýmsu
samvinnusambanda. Auk þess
er nú rætt um það í fullri al-
vöru, að slá saman ýmsum iðn-
greinum samvinnusambanda,
til þess að fá stærri heildir og
betri samkeppnisaðstöðu á
mörkuðum Vestur-Evrópu. Sú
breyting hefur nú orðið í heild-
sölunefndinni, að formaður
nefndarinnar, Heinrich Meins,
forstjóri Vestur-þýzka sam-
vinnusambandsins, hefur látið
af formannsstörfum, en í hans
stað var kosinn Mr. Leonard
Cooke, forstjóri brezka heild-
sölu samvinnusambandsins. Þá
hefur Mogens Efholm látið af
störfum sem framkvæmdastjóri
nefndarinnar, en síðast liðin
tvö ár hefur starfsemi hennar
farið fram á skrifstofum Sam-
vinnusambands Norðurlanda í
Kaupmannahöfn, þar sem
Mogens Efholm var fram-
kvæmdastjóri. Við starfi Ef-
holms hjá heildsölunefndinni
hefur tekið Niels Hoff, en hann
hefur starfað hjá Samvinnu-
sambandi Norðurlanda í nokk-
ur undanfarin ár og veitt for-
stöðu Ökonomiska Sekratariet.
— Hverjir eru aðilar að
heildsölunefndinni?
— Það eru aðeins samvinnu-
sambönd Vestur-Evrópu, auk
Israels, sem hefur verið aðili
frá stofnun hennar.
— Er ekki eitthvað nýtt að
frétta frá Nordisk Andelsfor-
bund, eða Samvinnusambandi
Norðurlanda?
— Jú, þar hafa átt sér stað
mannaskipti. Mogens Efhoim,
sem verið hefur forstjóri N.A.F.
síðast liðin 14 ár, lét af því
starfi s.l. sumar. í hans stað
var ráðinn Lars Lundin, sænsk-
ur samvinnumaður, sem und-
anfarin þrjú ár hefur veitt for-
stöðu skrifstofu N.A.F. í Lond-
on. Hann er nú forstjóri Sam-
vinnusambands Norðurlanda.
Lars Lundin er ungur maður,
41 árs að aldri. Hann hefur
áður gegnt trúnaðarstörfum
innan sænsku samvinnuhreyf-
ingarinnar.
— Hvernig gengur starfsemi
N.A.F. og hefur hún ekki all-
mikia þýðingu fyrir okkur á
íslandi?
— Jú, það hefur hún. Við höf-
um nokkur viðskipti við N.A.F.
Og starfsemi þess hefur færzt
mjög í aukana á þessu ári. r
lok septembermánaðar höfðu
viðskipti N.A.F. aukizt um 40%
frá f. á. Sambandið hefur aðal-
skrifstofu sína í Kaupmanna-
höfn, en auk þess hefur það
skrifstofur í London, Valencia
á Spáni, Santos í Brazilíu.
— Það er þaðan, sem við
fáum kaffið?
— Já, þaðan fá samvinnu-
samböndin á Norðurlöndum sitt
kaffi. Og nú hefur verið sett á
stofn sérstakt fyrirtæki: NAF
California í San Franzisko, til
þess að annast innkaup á
ávöxtum í Californíu og Vest-
urníkjum Bandaríikjanna. Þá
er einnig ráðgert, að setja á
stofn sérstaka skrifstofu á
ítalíu, varðandi ávaxtakaup
þar.
Samvinnan þakkar Erlendi
Einarssyni forstjóra fyrir
margar og fróðlegar upplýsing-
ar. Ritið kemur út aðeins einu
sinni í mánuði. Þess vegna er
svo erfitt að geta látið það
flytja fréttir, á meðan þær eru
nýjar af nálinni. En flest það,
sem forstjórinn talar um eru
ekki dægurmál, heldur efni,
sem tekur langan tíma að leysa
og raunar hljóta alltaf að vera
á dagskrá samvinnufélganna.
Og það er félagsleg skylda sam-
vinnufólksins á íslandi að
fylgjast með því sem er að
gerast á vegum samvinnufélag-
anna erlendis, enda hafa Tíma-
rit kaupfélaganna og síðan
Samvinnan kostað kapps um
að vera tengiliður á milli les-
enda sinna og samvinnufólks-
ins í öðrum löndum. Vegna ó-
líkra staðhátta og að einhverju
leyti ólíkrar þjóðar, hljóta sam-
56 SAMVINNAN